Umhverfisvænni matarpakkar og aukin þjónusta Einn og tveir & elda kynnir 18. febrúar 2020 08:45 Einn, tveir & elda býður upp á tilbúna matarpakka þar sem kaupandi getur valið úr tólf mismunandi réttum í hverri viku.
Einn, tveir & elda hefur fjölgað afhendingarstöðum sínum á höfuðborgarsvæðinu en fyrirtækið býður upp á tilbúna matarpakka þar sem kaupandi getur sett saman sinn matseðil og valið úr tólf mismunandi réttum í hverri viku. Einn, tveir & elda, sem er staðsett í Hafnarfirði, hefur nú opnað fyrir þann valmöguleika að viðskiptavinir geta nú sótt matarpakkann sinn bæði í Reykjavík og í Kópavogi, til viðbótar við að sækja beint til þeirra í Hafnarfjörðinn. „Okkur fannst kominn tími til að færa okkur nær stórum viðskiptavinahópum okkar í Kópavogi og Reykjavík. Hafnfirðingar hafa verið duglegir að sækja til okkar en það er kannski svolítið úr leið fyrir þá sem búsettir eru annarsstaðar á höfuðborgarsvæðinu og kjósa ekki heimsendingu,“ segir Jenný Sif, verkefnastjóri Einn, tveir & elda. Reykjavík og Kópavogur bætast við Fyrirtækið hóf samstarf við veitingastaðinn Metro um afhendingu matarpakka en veitingastaðurinn er staðsettur bæði á Smáratorgi í Kópavogi og á Suðurlandsbraut í Reykjavík. „Við höfum undanfarið fundið fyrir þörf á að fjölga afhendingarstöðum okkar einfaldlega til þess að auka þjónustu og gefa fólki meira val, við höfum heyrt það frá viðskiptavinum að stundum hentar einfaldlega ekki að fá heimsent, fólk er að vinna fram eftir og annað slíkt eins og gengur og gerist í daglegu lífi.“ Viðskiptavinir á landsbyggðinni ánægðir með þjónustunaFyrirtækið hóf einnig sendingar á matarpökkum sínum út á land síðastliðið haust og hefur það vakið mikla lukku meðal fólks á landsbyggðinni. „Við höfum fengið einstaklega góð viðbrögð frá landsbyggðinni og fólki finnst þetta almennt mjög skemmtileg viðbót og góð tilbreyting. Við eigum marga trygga viðskiptavini í öllum landshlutum sem við erum mjög þakklát fyrir.“ Minni plastnotkun hefur vakið lukkuEinn, tveir & elda tók skrefið í átt að umhverfisvænni umbúðum í byrjun árs og skipti öllum máltíðarpokum sínum yfir í pappírspoka. „Við höfum auðvitað tekið eftir því frá byrjun að matarpökkum fylgir gjarnan mikið plast og við ákváðum að tækla það verkefni. Nú er öllum hráefnum pakkað í pappírsumbúðir þegar á við auk þess sem máltíðirnar sjálfar eru í pappírspoka en ekki plastpoka eins og áður hefur tíðkast.“ Kynntu þér úrval girnilegra rétta á einntveir.is og einfaldaðu eldamennskuna svo um munar.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Einn, tveir & elda.
Matur Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Fleiri fréttir Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira