Siglingaleiðin óljós þótt til lands sjáist Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. janúar 2016 07:00 Frá undirritun og kynningu á stöðugleikasáttmálanum í júnílok 2009. Á myndinni eru Vilhjálmur Egilsson, þá framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Jóhanna Sigurðardóttir, þá forsætisráðherra og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. vísir/stefán
Viðræður standa yfir milli fulltrúa opinberra starfsmanna, fjármálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um jöfnun lífeyrisréttinda á almenna og opinbera markaðnum. pinberu félögin eru Bandalag háskólamanna (BHM), Bandalag starfsmanna ríkis og sveita (BSRB) og Kennarasamband Íslands. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, segir um að ræða áframhald viðræðna sem teknar hafi verið upp að nýju í haust. Jöfnun lífeyrisréttinda sé hins vegar hluti af stöðugleikasáttmálanum svokallaða sem aðilar vinnumarkaðar, ríki og sveitarfélög undirrituðu 25. júní 2009. Unnið hafi verið að jöfnun réttindanna allt frá þeim tíma. Viðræðurnar sem nú eru í gangi eru á grundvelli draga að skýrslu vinnuhóps fjármála- og efnahagsráðherra um endurskoðun lífeyrismála, samkvæmt níundu grein stöðugleikasáttmálans og nefnist „Framtíðarsýn í lífeyrismálum“. Drögin voru birt á vef ráðuneytisins í byrjun júlí í fyrra.Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHMHlé varð á viðræðunum á meðan, í kjaradeilum haustsins, var leitað leiða til að gera jöfnun lífeyrisréttindanna hluta af SALEK-samkomulaginu. BHM og KÍ féllust ekki á það og stóðu því utan þess samkomulags sem gengið var frá í októberlok. „Við vildum ekki tengja lífeyrisréttindin við þetta tímabundna samkomulag um launastefnu til ársloka 2018. Þetta mál er á öðru samningaborði, sem við sitjum við núna,“ segir Þórunn, en viðræður um málið voru aftur teknar upp á þeim vettvangi í nóvember. Þórunn segir erfitt að leggja mat á hvort sjái fyrir endann á viðræðunum. „Eigum við ekki að orða það þannig að það sé landsýn en siglingaleiðin sé ekki fundin.“ Þessa dagana sé fundað nokkuð stíft. Síðasti fundur var í gær föstudag og gert ráð fyrir áframhaldandi fundum eftir helgi. Í tillögum vinnuhópsins sem skilaði niðurstöðum sínum í fyrrasumar kemur fram að grundvallarmarkmið fyrirhugaðra breytinga á lífeyriskerfinu sé að skapa sjálfbært og samræmt lífeyriskerfi til framtíðar fyrir íslenskan vinnumarkað. Kerfið hvíli á þremur stoðum almannatrygginga, samtryggingarlífeyrissjóða og viðbótalífeyrissparnaðar. Niðurstaða hópsins er að miða við að launafólk geti vænst þess að fá í lífeyri um það bil 76 prósent af meðalævitekjum sínum. „ Það viðmið byggir á núgildandi réttindum A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) þannig að samkomulag er um að færa það hlutfall sem er á almenna vinnumarkaðinum upp að þessu viðmiði,“ segir þar. Um leið færist iðgjald allra í 15,5 prósent og lífeyrisaldur allra verði 67 ár.
Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira