Viðskipti innlent

Sprengisandslína á lítið að sjást frá nýjum hálendisvegi

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Möstur sem þessi hér á Hellisheiði þykja óvíða prýði í landslagi og til nokkurs að vinna að fela háspennulínur eftir því sem kostur er.
Möstur sem þessi hér á Hellisheiði þykja óvíða prýði í landslagi og til nokkurs að vinna að fela háspennulínur eftir því sem kostur er. Fréttablaðið/Vilhelm
Gangi áætlanir eftir verður Sprengisandslínu Landsnets nær hvergi að sjá frá fyrirhuguðum Sprengisandsvegi.

„Sprengisandslína hefur um langan tíma verið inni á skipulagi og var sett inn í samræmi við hugmyndir sem þá voru í gangi um veg yfir Sprengisand. Síðan eru komnar breyttar áherslur þannig að á hefur komst samstarf á milli nokkurra aðila um nýja útfærslu á Sprengisandslínu,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets.

Nýju áherslurnar séu í þá átt að nýi vegurinn verði „ferðamannavegur“ og það hafi kallað á ákveðnar tilfærslur á honum.

„Samhliða því höfum við verið að skoða flutningslínuna og færa til staðsetningu hennar til að draga úr sjónrænum áhrifum línunnar,“ segir Guðmundur Ingi.

Þessi vinna segir hann að hafi tekist nokkuð vel og línan jafnvel ekki sjáanleg frá veginum á löngum köflum.

„Og í öðrum tilvikum ber hana við landið þannig að hún sést illa og mjög sjaldan við himinn og þveri veginn ekki nema að mjög takmörkuðu leyti, tvisvar sinnum ef ég man rétt.“

Guðmundur Ingi Ásmundsson
Guðmundur Ingi segir skipulagsvinnu fyrir syðri hluta línunnar langt komna. Norðan megin sé vinnan eitthvað skemur á veg komin, en í heildina litið sé verkið nokkuð langt komið.

„Í framhaldinu förum við svo á næsta ári að huga að mati á umhverfisáhrifum fyrir línuna og setja þá í þennan hefðbundna farveg.“ 

Eftir því sem Guðmundur best veit er þetta í fyrsta sinn sem jafnviðamikið samstarf hefur tekist á um verkefni sem þetta.

„Þarna erum við líka að beita nýjustu aðferðum sem við höfum við að fella línuna betur að landinu.“

Til þessa hafi vinnulagið alla jafna verið þannig að vegur hafi verið kominn og Landsnet svo þurft að laga sig að honum við línulögnina. 

Hreinn Haraldsson
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir Landsnet heldur lengra komið í fyrirætlunum um raflínu yfir Sprengisand en Vegagerðin í áætlunum um nýjan veg.

„Það eru hvorki fyrirhugaðar fjárveitingar í þetta né hafa verið teknar ákvarðanri um hvernær svona mannvirki kæmi eða hvernig það yrði,“ segir hann.

„Þarna er bara verið að nota tímann og stilla stilla saman strengi þannig að þeir séu ekki að leggja slóða sem ekki myndu henta okkur þegar fram líða stundir.“

Hreinn segir hugmyndir og óskir um að vegur um Sprengisand yrði endurgerður þannig að hann yrði fær fleirum og opinn lengur yfir árið lengi hafa verið á lofti.

„En við reynum að stilla þetta þannig að vegurinn sem þeir þurfa fyrir sína línulögn nýtist, annað hvort beint eða með endurbótum, sem vegur sem ferðamenn myndu vilja fara um í framtíðinni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×