Óvíst hvort Besta útihátíðin verður aftur BBI skrifar 9. júlí 2012 16:38 Af hátíðinni um helgina. Mynd/Helgi Steinar
Aðstandendur Bestu útihátíðarinnar eru ekki búnir að finna nýtt nafn á útihátíðina. Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að hátíðin mætti ekki nefnast „Besta útihátíðin" þar sem ekki væru neinar sannanir fyrir því að hátíðin væri raunverulega best. „Það er ekki einu sinni víst að hátíðin verði aftur skilurðu," segir Haraldur Ási Lárusson, aðstandani hátíðarinnar „Það að byrja upp á nýtt, með nýtt nafn er bara eins og að byrja á byrjunarreit. Og þá byrjar maður bara að tapa aftur." Því er allt í lausu lofti þar á bæ og menn að velta fyrir sér hver næstu skref verða. Besta útihátíðin hefur verið haldin síðustu þrjú árin. Að sögn Haralds gekk allt eins og í sögu þetta árið. „Yfirlögregluþjónninn og yfirlæknirinn sögðust myndu sakna okkar eftir helgina, þetta var svo vel skipulagt. Allt gekk upp." Haraldur áætlar að um 5000 manns hafi verið á svæðinu. Haraldur er mjög svekktur vegna úrskurðar Neytendastofu. „Ég skal segja þér söguna af því hvernig þetta gerðist," segir hann. „Þetta byrjaði með því að við vorum kærðir fyrir hátíðina í fyrra. Við andmæltum því og fengum að hafa nafnið fram yfir hátíð. Í ágúst höfðum við aftur samband og tékkuðum á stöðunni. Fengum þau svör að málið væri í vinnslu og við yrðum látnir vita." „Eftir það var ekkert samband við okkur haft fyrr en í maí þegar við byrjuðum að auglýsa fyrir hátíðina. Þá kom bréf inn um lúguna hjá mér um að það hefði verið úrskurðað 29. mars að við mættum ekki nota nafnið. Við náðum að berja það í gegn að við fengum að halda nafninu fram yfir hátíð. Nú erum við bara dálítið í lausu lofti."
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Sjá meira