Körfubolti

Fann besta erlenda leikmann sem hefur leikið hér á landi í körfuboltabúðum í New Jersey

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kostas Tsartsaris hóf glæstan feril hjá Grindavík tímabilið 1997-98. Þar lék hann undir stjórn Benedikts Guðmundssonar.
Kostas Tsartsaris hóf glæstan feril hjá Grindavík tímabilið 1997-98. Þar lék hann undir stjórn Benedikts Guðmundssonar. vísir/getty

Bestu erlendu leikmenn í sögu efstu deildar karla í körfubolta á Íslandi voru til umræðu í Domino's Körfuboltakvöldi á föstudaginn. Benedikt Guðmundsson tilnefndi grískan leikmann sem lék undir hans stjórn hjá Grindavík rétt fyrir aldamótin.

„Að mínu mati er besti erlendi leikmaðurinn strákur sem ég fékk til landsins á síðustu öld. Hann kom sautján ára. Ég var að þjálfa í æfingabúðum í New Jersey og þar voru efnilegustu leikmennirnir úr menntaskóla í Bandaríkjunum auk efnilegra stráka úr Evrópu,“ sagði Benedikt.

„Ég samdi við þennan strák sem var að spila í 4. deild í Grikklandi. Hann var að spá að fara í háskóla en var þarna með umboðsmanninum, sem var bannað. Ég talaði þá inn á það að koma til Íslands að spila. Þeir kýldu á þetta fyrir eitthvað klink. Hann fékk reyndar ekki keppnisleyfi fyrr en hann var orðinn átján ára. En hann var frábær.“

Umræddur leikmaður heitir Kostas Tsartsaris. Hann lék lengst af ferilsins með Panathinaikos í heimalandinu. Hann varð tíu sinnum grískur meistari með liðinu, átta sinnum bikarmeistari og vann EuroLeague í þrígang. Enginn leikmaður í sögu grísku deildarinnar hefur tekið fleiri fráköst en hann. Þá varð Tsartsaris Evrópumeistari með gríska landsliðinu 2005 og fékk silfur á HM ári seinna.

„Í hvert skipti sem ég fer til Grikklands er ég alltaf tekinn í viðtal um hann. Mönnum finnst stórmerkilegt að hann hafi verið á Íslandi því þetta er einn besti leikmaðurinn sem Grikkland hefur átt. Það sem hann hefur gert á sínum ferli er eitthvað sem enginn Kani sem hefur komið hingað hefur gert,“ sagði Benedikt.

Tsartsaris varð deildar- og bikarmeistari með Grindavík. Á eina tímabilinu sínu á Íslandi (1997-98) var hann með 20,7 stig, 11,3 fráköst og 4,5 varin skot að meðaltali í leik.

„Annar eins hæfileikamaður hefur aldrei komið hingað,“ sagði Benedikt um Tsartsaris.

Innslagið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Dominos Körfuboltakvöld - Benedikt um besta erlenda leikmanninn

Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.


Tengdar fréttir

Heitustu orðrómarnir úr Dominos-deild karla

Dominos Körfuboltakvöld hefur haldið áfram að rúlla þrátt fyrir að það sé rúmur mánuður frá því að keppnistímabilið og allt mótahald innan vébanda KKÍ var blásið af vegna kórónuveirunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×