Opinberir starfsmenn hafna ASÍ-samningi sem fyrirmynd Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 23. desember 2013 07:00 Mynd/Stefán
Kennarar telja að kjarasamningar sem gerðir voru á almenna markaðnum geti ekki orðið fyrirmynd að samningi fyrir þá. „Það þarf að hækka laun kennara umtalsvert,“ segir Björg Bjarnadóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands. „Við munum ekki taka þessa samninga hráa upp. Ég hefði viljað sjá meiri jöfnuð í þeim,“ segir Árni St. Jónsson, formaður Stéttarfélags í almannaþjónustu, SFR. Deildar meiningar eru um nýja kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins og verkalýðsfélaganna. Mánaðarlaun þess sem er með 246 þúsund krónur á mánuði hækka um 8 þúsund og skattar eru óbreyttir. Mánaðarlaun þess sem er með milljón á mánuði hækka um 28 þúsund og breytingar á tekjuskattskerfinu skila honum tæpum 3.500 krónum á mánuði. „Ég er svo sorgmæddur og reiður fyrir hönd íslensks verkafólks að það nær engu tali. Mér sýnist að íslensk verkalýðshreyfing sé endanlega að deyja drottni sínum vegna kjarkleysis og aumingjadóms,“ segir Aðalsteinn Baldursson, formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar á Húsavík. Formenn Framsýnar, Drífanda í Vestmannaeyjum, Bárunnar á Selfossi og Verkalýðsfélags Grindavíkur neituðu að skrifa undir kjarasamningana. Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda í Vestmannaeyjum, segir að launahækkanir samkvæmt samningnum skiptist óréttlátt niður. Þeir sem hafa lægst laun fái fæstar krónur en þeir sem hafa mest fyrir fái mestu hækkanirnar. Aðalsteinn segir ASÍ og Samtök atvinnulífsins vera búin að skuldbinda alla þá sérkjarasamninga sem aðildarfélög ASÍ eigi eftir að gera til að hlíta sömu launahækkunum sem samið sé um núna. Þetta þýði að allir stóriðjusamningarnir og fiskmjölssamningar sem á eftir að gera séu bundnir af þessum skammarlega samningi. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, vonast til að verðbólgan éti ekki upp launahækkanir sem fylgja nýjum kjarasamningi. „Við þurfum að stefna að því að verðbólgan verði í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, eða 2,5 prósent. Ef það tekst höfum við mikla hagsmuni af því.“ Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu í dag.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira