Spikið var alltaf að þvælast fyrir Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 17. febrúar 2015 09:45 Anna þakkar þyngdartapið að mestu leyti breyttu matarræði. Vísir/AndriMarinó „
Mér var bara farið að líða illa, var hætt að geta reimað skóna. Spikið var alltaf að þvælast fyrir,“ segir Anna Kristjánsdóttir vélfræðingur, en hún er jafnframt einn fyrsti Íslendingurinn sem gekkst undir kynleiðréttingu. Fyrir sex mánuðum var Anna rúm níutíu og sjö kíló en hefur nú létt sig um tuttugu kíló. Þyngdartapið þakkar hún að mestu leyti breyttu mataræði. „Ég er á þessu svokallaða lágkolvetnafæði, tók út brauðið og kartöflurnar og bætti inn ávöxtum.“ Hún hefur þó ekki lifað neinu klaustuslífi að eigin sögn, fær sé sætindi þegar svo á við en gætir hófs. Jafnframt segir hún að það sé talsvert ódýrara að sleppa því að kaupa brauð, því það sé dýrt. „Ég kalla þetta Bjarnakúrinn, borða fyrir 750 krónur á dag,“ segir Anna glöð í bragði. Hún er hógvær yfir árangrinum og segir að fjölmargir í vinnunni hjá sér séu í svipuðu átaki. „Ég held að það sé búið að fækka bráðum um heilt stöðugildi hjá mér hérna á vaktinni, bara í formi kílóa. Þannig að það er heilmikill sparnaður í þessu,“ segir Anna hress en hún starfar hjá Orkuveitu Reykjavíkur.Myndirnar eru teknar með rúmlega sex mánaða millibili, á því tímabili léttist Anna um rúm tuttugu kíló.Mynd/AnnaTil þess að hvetja sig áfram og verðlauna sig fyrir árangurinn pantaði hún sér utanlandsferð, en markið setur hún á að vera komin niður í sjötíu og fimm kíló í maí. „Ég er búin að panta mér ferð til Parísar í byrjun júní, þá á ég að vera komin í stand. Annars verð ég bara að hætta við ferðina, það væri alveg hræðilegt,“ segir hún og hlær. Anna hefur barist við kílóin undanfarin fimmtán ár og prófað ýmislegt og er árangurinn núna sá besti sem hún hefur náð. „Þetta hefur gengið mun hraðar en ég ætlaði mér, þetta gekk það vel í byrjun að ég er talsvert á undan áætlun. Nú get ég reimað skóna með góðu móti,“ segir Anna glöð að lokum.
Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira