Körfubolti

„Nú fékk maður loksins að syngja með „We Are the Champions““

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin ánægður með gullmedalíuna.
Martin ánægður með gullmedalíuna. vísir/getty

„Tilfinningin var hrikalega góð. Það er alltof langt síðan ég vann eitthvað. Það var 2014 þegar ég varð Íslandsmeistari með KR,“ sagði Martin Hermannsson, nýkrýndur þýskur bikarmeistari, í samtali við Vísi.

Martin og félagar hans í Alba Berlin unnu Baskets Oldenburg í bikarúrslitaleik á sunnudaginn, 89-67.

Á síðasta tímabili tapaði Alba Berlin í úrslitum um þýska meistaratitilinn, bikarmeistaratitilinn og í úrslitum EuroCup. Martin segir að sigurinn á sunnudaginn hafi verið mjög sætur í ljósi síðasta tímabils.

„Nú fékk maður loksins að syngja með „We Are the Champions“. Hitt var orðið svolítið þreytt,“ sagði Martin.

Bikarúrslitaleikurinn fór fram í Mercedes-Benz höllinni í Berlín, á heimavelli Alba Berlin.

„Stemmningin var geðveik. Það voru um 14.600 manns á vellinum. Það er auðvitað mikið undir. Þeir byrjuðu töluvert betur og við komust ekki í gang í 1. leikhluta og eiginlega ekki í fyrri hálfleik,“ sagði Martin. Oldenburg var þremur stigum yfir í hálfleik, 40-43.

„Við vissum að ef við myndum halda háu tempói og ná hraðaupphlaupum myndum við brjótum þá á bak aftur. Við erum með meiri breidd. Við hittum ekkert sérstaklega vel en gerðum það sem til þurfti.“

Fannst ég skulda liðinu

Martin skoraði 20 stig í leiknum og var stigahæstur í liði Alba Berlin. Hann nýtti skotin sín vel sem hefur ekki alltaf verið raunin í vetur.

„Í leiknum á undan klikkaði ég úr öllum átta þriggja stiga skotunum mínum. Mér fannst ég skulda liðinu aðeins. Það var kannski fínt að taka klikkin út fyrir þennan leik,“ sagði Martin.

„Mér leið vel og lét leikinn koma til mín. Mig langaði rosalega að verða meistari og var tilbúinn að gera nánast hvað sem er.“

Þetta var fyrsti titilinn sem Alba Berlin vinnur í fjögur ár, eða síðan liðið varð bikarmeistari 2016.

„Þetta var líka fyrsti titilinn sem Alba Berlin vinnur á heimavelli síðan 2013. Það var frekar ljúft að vinna fyrir framan stuðningsmennina sem eru búnir að styðja þvílíkt vel við bakið á okkur.“

Martin og félagar eru hvergi nærri hættir og ætla sér að verða Þýskalandsmeistarar í fyrsta sinn síðan 2008.

„Við erum með lið sem getur farið alla leið. Við vorum óheppnir í fyrra. Lið Bayern München, sem er okkar helsti keppinautur, hefur breyst og við finnum að við getum farið alla leið sem er markmiðið.“

Hlakkar til fyrsta sumarfrísins síðan 2009
Martin í leik gegn Real Madrid.vísir/getty

Alba Berlin tekur þátt í EuroLeague, þar sem bestu lið Evrópu mætast. Því fylgir mikið álag sem Martin segist hafa fundið fyrir.

„Ég hef verið að læra á líkamann upp á nýtt. Ég hef aldrei kynnst svona svakalegu leikjaálagi og ferðalögum,“ sagði Martin.

„Ég er byrjaður að finna til á stöðum sem ég ekki fundið til áður. Þetta er lærdómstímabil fyrir mig og mér finnst ég hafa höndlað þetta ágætlega. En ég hlakka líka til að fá sumarfrí, það fyrsta síðan 2009.“

En eru einhverjir þættir sem Martin þarf að bæta í sínum leik til að standa betur að vígi í baráttuna við þá bestu?

„Vörnin hefur þroskast mikið. Ég hef lagt mikla áherslu á varnarleikinn og er orðinn miklu betri varnarmaður en ég var,“ svaraði Martin.

„Ég hef ekki hitt vel í vetur, sérstaklega fyrir utan þriggja stiga línuna. Ég þarf líka að vinna í andlega þættinum, að halda mér ferskum og finna ánægjuna í að spila 80 leiki á ári.“

Örugglega á pari við NBA
Martin nýtur þess að spila við bestu leikmenn Evrópu.vísir/getty

Martin segir það mikla upplifun að spila við bestu lið Evrópu, nánast í hverri viku.

„Þetta eru þvílík forréttindi. Þetta er miklu stærra en Íslendingar gera sér grein fyrir. Það er synd að þetta sé ekki sýnt og fólk viti ekki meira um EuroLeague,“ sagði Martin.

„Þetta er örugglega á pari við NBA-deildina. Ég geri stundum grín að því að það sé spiluð vörn þarna en ekki í NBA.“

En hvaða leikir hvaða staðið upp úr í vetur?

„Báðar ferðirnar til Tyrklands voru eftirminnilegar. Við töpuðum reyndar báðum leikjunum í framlengingu. En að spila í Istanbúl að spila fyrir framan þessa blóðheitu stuðningsmenn var frekar magnað,“ sagði Martin. 

Gaman að komast á þennan lista
Martin lék frábærlega í báðum leikjum Alba Berlin í Grikklandi, gegn Panathinaikos og Olympiacos.vísir/getty

„Svo var gaman að vinna Rauðu stjörnuna í Serbíu fyrir framn fulla höll, 20.000 manns. Allir þessir leikir sitja fast í manni. Maður er að gera þetta í fyrsta skipti og spila á móti leikmönnum sem maður hefur litið upp til. Það er eitthvað fallegt við alla leikina.“

Martin komst í fámennan hóp leikmanna sem hafa skorað 20 stig og gefið tíu stoðsendingar í leik í EuroLeague þegar hann afrekaði það í sigri á Panathinaikos í Aþenu, 105-106, í tvíframlengdum leik í nóvember.

„Það var gaman að komast á þennan lista. Það sannaði fyrir mér hvað ég get gert á þessu stigi,“ sagði Martin.

Maður þarf að láta reyna á sig
Martin nýtur lífsins í Berlín.vísir/getty

Samningur Martins við Alba Berlin rennur út eftir tímabilið. Hann segir óljóst hvað tekur við.

„Í sumar skoða ég hvað er best fyrir mig,“ sagði Martin. Hann er opinn fyrir því að spila áfram með Alba Berlin.

„Ég myndi klárlega skoða það. Það yrði erfitt að fara frá Berlín, bæði út af körfuboltanum og lífinu hérna. En maður þarf að láta reyna á sig og sjá hversu langt maður getur náð. Ég held öllu opnu,“ sagði Martin að lokum.


Tengdar fréttir

Martin stigahæstur er Alba Berlin varð bikarmeistari

Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson varð í kvöld þýsku bikarmeistari er lið hans Alba Berlín vann öruggan sigur á Baskets Oldenburg í úrslitum. Martin gerði sér lítið fyrir og var stigahæstur á vellinum með 20 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×