793 látnir af völdum veirunnar á Ítalíu síðasta sólarhringinn Atli Ísleifsson skrifar 21. mars 2020 18:27 Lögreglubíll ekur eftir götum Mílanóborgar. Ítalir hafa verið hvattir til að halda sig heima. AP
Ekkert lát virðist vera á dauðsföllum á Ítalíu tengdum kórónuveirunni. Samkvæmt nýjustu tölum frá heilbrigðisyfirvöldum hafa 793 manns látist af völdum veirunnar síðasta sólarhringinn. Heildarfjöldi dauðsfalla vegna veirunnar í landinu er nú 4.825. Aukning dauðsfalla síðasta sólarhringinn var því 19,6 prósent að því er fram kemur í frétt Reuters. Ekki hafa fleiri dauðsföll vegna veirunnar verið skráð í landinu á einum sólarhring frá því að faraldurinn hófst þar fyrir um mánuði. Fréttir bárust frá því síðastliðinn fimmtudag að fleiri hafi látist af völdum veirunnar á Ítalíu en í Kína þar sem faraldurinn kom upp undir lok síðasta árs. Alls hafa nú 53.578 manns greinst með kórónuveirusmit á Ítalíu, en fjöldinn var 47.021 í gær. Ástandið er verst í Langbarðalandi (Lombardy) þar sem dauðsföllin vegna veirunnar telja nú 3.095 og smittilfellin 25.515. Af þeim sem hafa greint með smit á Ítalíu hafa tæplega 6.072 manns náð fullum bata, en sú tala stóð í 5.119 í gær. 2.857 manns eru nú á gjörgæslu samanborið við 2.655 í gær.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ítalía Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira