Innlent

Eldur í gistiheimili

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út.
Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út. Vísir/Nadine

Eldur kom upp á gistiheimili á Ránargötu í Vesturbæ Reykjavíkur upp úr klukkan tvö í dag.

Allt tiltækt lið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Vel gekk að slökkva eldinn og er verið að reykræsta húsnæðið sem stendur.

Frá vettvangi í dag.Vísir/Sigurjón
Húsin við Ránargötu standa hvert ofan í öðru.Vísir/Sigurjón


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×