Innlent

Formenn þingflokka funda með Steingrími

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingar.
Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingar. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Þingflokksformenn munu funda með forseta Alþingis í dag um kröfu stjórnarandstöðunnar um að þing verði kallað saman til að ræða sóttvarnarbrot Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra.

Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, óskaði í gær eftir því að þing verði kallað saman á morgun fyrir sérstaka umræðu um þá hættu sem flokkurinn telur geta skapast vegna hópamyndana um áramótin. Ástæða sé til þess að óttast að „skeytingarleysi fjármálaráðherra um sóttvarnareglur“ muni draga dilk á eftir sér,

„Nú hafa þrjátíu stjórnarandstöðuþingmenn tekið undir þá ósk að þingið komi saman á morgun en ég bíð enn þá eftir svörum frá þingflokksformönnum Vinstri Grænna og Framsóknar. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks telur ólíklegt að þau taki undir þessa ósk,“ segir Oddný.

Þar sem þrjátíu þingmenn stjórnarandstöðu taka undir kröfuna þyrftu aðeins tveir þingmenn stjórnarflokka að gera það einnig til að meirihluti náist og að þing verði kallað saman. 

Miðflokkurinn hefur áður farið fram á að þing komi saman á milli jóla og nýárs vegna umræðu um bóluefni. Fundað verður um þessar kröfur í dag.

„Við fáum fund með forseta, það er þingflokksformennirnir, klukkan korter yfir þrjú í dag. Þá förum við yfir þetta allt saman,“ segir Oddný.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, ætlar að funda með formönnum þingflokka á eftir.vísir/Vilhelm

Í tilkynningu sem eigendur Ásmundarsalar sendu frá sér í morgun segir að reglur um fjöldatakmarkanir eða opnunartíma sölusýningar hafi ekki verið brotnar. Ekki hafi verið um einkasamkvæmi að ræða og að leyfi hafi verið fyrir samtals fimmtíu manns í húsinu á Þorláksmessukvöld. Telja eigendur að fjöldi gesta hafi verið undir því viðmiði.

Grímunotkun hafi hins vegar verið ábótavant og að því leyti hafi misfarist að tryggja sóttvarnir. Í orðsendingu lögreglunnar um atvikið kom einmitt fram að enginn hefði borið grímu og að fjarlægðarmörk hafi nánast hvergi verið virt.

„Alþingi er umræðuvettvangur alþingismanna og þess vegna er mikilvægt að boðað verði til fundar til að ræða þessi mál. Við erum ekki að setja sóttvarnarreglur að gamni okkar og það er alvarlegt mál þegar ráðherra í ríkisstjórn stenst ekki freistingar,“ segir Oddný.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×