Fótbolti

„Vissi ekki að kvenfyrirlitning, karlremba og vanvirðing kæmust saman í eitt tíst“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þórdísi Hrönn Sigfúsdóttur fannst illa vegið að leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins.
Þórdísi Hrönn Sigfúsdóttur fannst illa vegið að leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins.

Heitar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum hjá þeim sem hafa tekið til varna fyrir Jón Þór Hauksson, fráfarandi þjálfara íslenska kvennalandsliðsins.

Jón Þór lét af störfum sem landsliðsþjálfari í gær. Í yfirlýsingu frá honum sagðist hann hafa farið yfir strikið í samtölum sínum við leikmenn er hann var undir áhrifum áfengis í Ungverjalandi á þriðjudaginn í síðustu viku. Íslenska liðið fagnaði því þá að vera komið á EM 2022 í Englandi. 

„Ég hef alltaf lagt áherslu á að koma hreint og beint fram við þá leikmenn sem ég hef þjálfað, að hrósa og gagnrýna með það að markmiði að hjálpa þeim að gera enn betur og styrkja þannig liðið. Slík samtöl eiga hins vegar ekki heima í fögnuði sem þessum og alls ekki undir áhrifum áfengis. Þarna brást ég sem þjálfari liðsins og hefði ekki átt að ræða frammistöðu og þjálfun einstakra leikmanna undir þessum kringumstæðum. Það voru mistök sem ég tek fulla ábyrgð á og hef beðið liðið og einstaka leikmenn afsökunar,“ segir Jón Þór og bætir við að eftir samtöl við leikmenn liðsins hafi honum orðið ljóst að erfitt yrði að endurheimta nauðsynlegt traust milli sín og þeirra.

Andri Júlíusson, leikmaður Kára, kom sveitunga sínum og hálfbróður til varnar í færslu á Twitter í gær. Þar óskar Andri KSÍ og Fótbolta.net, sem flutti fyrstur fréttir af máli Jóns Þórs, til hamingju með að hafa hrakið hann úr starfi. 

Hann kallar svo leikmenn landsliðsins litlar mýs sem þoli ekki að láta tala við sig eins og karla. Og það passi ekki við að þær berjist á sama tíma fyrir sömu launum og árangurstengdum greiðslum frá KSÍ.

Viðbrögðin við færslu Andra eru mikil og virðast langflestir sem tjá sig um hana á því að hann hafi skotið langt yfir markið með ummælum sínum. Tæplega áttatíu einstaklingar hafa þó „líkað“ við færsluna.

Meðal þeirra sem svara færslu Andra eru Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, leikmaður KR, og Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA, sem báðar hafa leikið með landsliðinu.

„Vissi ekki að kvenfyrirlitning, karlremba og vanvirðing kæmist saman í eitt tíst,“ segir Þórdís og útnefnir Andra svo amlóða ársins. 

Arna Sif bendir á að nú sé árið 2020 og spyr hvort við séum í alvörunni ekki komin lengra en þetta.

Ragnheiður Júlíusdóttir, landsliðsmaður í handbolta og leikmaður Fram, notar svokallaða emoji til að tjá skoðun sína á færslu Andra. Einum kallinum er flökurt, annar kastar upp og höfuðið á þeim þriðja er að springa.

Eva Björk Benediktsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, tekur einnig til máls. 

„Þetta er allra versta take sem ég hef séð. Á svo marga vegu - alvöru kall,“ skrifar Eva og lætur mynd af trúði fylgja með.

Meðal annara sem tjá sig um færslu Andra eru borgarfulltrúinn Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, Hörður Ágústsson, oftast kenndur við Macland, og Þóra Tómasdóttir sem gerði heimildamynd um kvennalandsliðið á sínum tíma. 

Sú síðastnefnda biður fyrir Andra og óskar þess að hann jafni sig fljótt og örugglega.

Reynslubolti reiðir til höggs

Sigmundur Ó. Steinarsson, sem var íþróttafréttamaður í nokkra áratugi og skrifaði meðal annars bók um sögu kvennalandsliðsins, skrifaði færslu um máls Jóns Þórs á Facebook í dag undir yfirskriftinni: STOPP - leikmenn ráða ekki ferðinni!

Hann ber mál Jóns Þórs saman við það þegar Þórður Lárusson hætti sem þjálfari kvennalandsliðsins um aldamótin.

„Jón Þór er ekki fyrsti þjálfarinn sem landsliðskonur hafa komið frá. Þórður Lárusson fékk að kynnast því 2000. Margar landsliðskonur vildu koma Sigurði Ragnari Eyjólfssyni frá, en hann náði frábærum árangri með landsliðið; kom því á EM í Finnlandi 2009 og Svíþjóð 2013. Sigurður Ragnar hafði ákveðnar skoðanir, sem sumar landsliðskonur voru ekki sáttar við. Hann ákvað að hafna boði KSÍ um áframhaldandi samstarf í árslok 2015.

Þegar Þórður ákvað að láta af störfum eftir að hópur landsliðskvenna hafði tilkynnt að þær myndu ekki leika með landsliðinu undir stjórn hans, tók Logi Ólafsson við landsliðinu og sagði hann við mig í bókinni; Stelpurnar okkar: „Það var nokkuð einkennilegt að taka við landsliðinu eftir að stúlkurnar höfðu svælt Þórð út.“

Sigmundur segir ljóst að vandi KSÍ sé mikill og nauðsynlegt sé að hreinsa algjörlega í teymi kvennalandsliðsins.

„Það er ljóst að vandi KSÍ er mikill. Það er skoðun margra að KSÍ verði að hreinsa algjörlega út, til að ná eðlilegu andrúmslofti í umhverfi kvennalandsliðsins. Allir þeir sem hafa komið nálægt landsliðinu undanfarin ár og þekkja persónulega til leikmanna, verða að víkja.

Nýr þjálfari verður að koma að hreinu borði, með sýnar hugmyndir. Hann verður að láta leikmenn vita strax, eins og Logi gerði, hver það er sem ræður ferðinni í sambandi við leikskipulag og val á leikmönnum. Skilaboðin eiga að vera skýr: STOPP – leikmenn ráða ekki ferðinni! Það er ég sem geri það.“

STOPP leikmenn ráða ekki ferðinni! Þær landsliðskonur í knattspyrnu sem vildu að KSÍ segði Jóni Þór Haukssyni,...

Posted by Sigmundur Steinarsson on Tuesday, December 8, 2020

Nokkur fjöldi tekur undir með Sigmundi í athugasemdakerfinu og hrósar honum fyrir pistilinn. Þeirra á meðal íþróttafréttamaðurinn og fyrrum landsliðsmaðurinn Hörður Magnússon. „Heyr heyr,“ segir Hörður. Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, tekur í sama streng.

Sigurður Helgason, sá reynslumikli þjálfari, segir að nánast allir þjálfarar kvennalandsliðsins hafi lent í því sama og það sé nauðsynlegt að koma leikmönnum í skilning um að þjálfarinn ráði.

Ingibjörg Hinriksdóttir, sem lengi vel var eina konan í stjórn KSÍ, bendir á að sama hvað fólki finnist standi eftir sú staðreynd að þjálfari íslenska kvennalandsliðsins hafi orðið drukkinn í ferð með landsliðinu og látið svo ósæmileg orð falla að hann þurfti að biðjast afsökunar á orðum sínum. 

„Þá er komið að stjórn KSÍ að ákveða - er það ásættanleg hegðun eða ekki. Niðurstaðan er sú að Jón Þór segir upp. Þá held ég að það sé gott að setja punkt svo ekki verði fleiri tjargaðir, fiðraðir og hengdir upp í tré - leikmenn, ungir eða eldri. Málið allt er til þess fallið að varpa skugga á árangur liðsins og þar hlýtur þjálfarinn að bera ábyrgð. Hana hefur hann axlað og fyrir það er hann maður að meiri,“ skrifar Ingibjörg.

Hvað næst?

Guðna Bergssonar, formanns KSÍ, bíður nú það verkefni að finna þjálfara fyrir bæði karla- og kvennalandslið Íslands í fótbolta.

Meðal þeirra sem hafa verið nefndir til sögunnar sem líklegir eftirmenn Jóns Þórs með kvennalandsliðið eru Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks.

Ekki liggur fyrir hvenær kvennalandsliðið leikur næst. Það hefur venjulega farið á mót í mars, oftast á Algarve-mótið en á þessu ári lék Ísland á Pinatar Cup á Spáni.

Undankeppni HM 2023, sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi, hefst væntanlega á næsta ári og svo er Evrópumótið í Englandi sumarið 2022.


Tengdar fréttir

Mál Jóns Þórs voru ekki rædd á stjórnarfundi KSÍ

Varaformaður KSÍ sagði félögum sínum í stjórn Knattspyrnusambands Íslands ekki frá því sem gerðist eftir leik Íslands og Ungverjalands þegar hún sat með þeim fund tveimur dögum síðar.

Jón Þór bíður eftir fundi með KSÍ og stelpunum

Framtíð Jóns Þórs Haukssonar sem þjálfara A-landsliðs kvenna er talin hanga á bláþræði í kjölfar framkomu þjálfarans gagnvart leikmönnum eftir frækinn sigur á Ungverjalandi í vikunni. Með sigrinum tryggði landsliðið sér sæti á Evrópumótinu 2022.

Ætlar ekki að tjá sig frekar um upp­á­komuna

Jón Þór Hauksson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, vildi ekki tjá sig nánar um það sem fram fór í fagnaðarlátum liðsins eftir að EM sætið var tryggt í Ungverjalandi fyrr í vikunni.

Framkoma Jóns Þórs í fögnuði landsliðsins til skoðunar

Framkoma Jóns Þórs Haukssonar landsliðsþjálfara í fögnuði íslenska kvennalandsliðsins eftir að þær tryggðu sér sæti á EM 2022 á þriðjudaginn er til skoðunar hjá KSÍ. Hann var undir áhrifum áfengis og þótti fara yfir strikið í samtölum sínum við leikmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×