Menning

Glænýr bóksölulisti: Stefnir í ein mestu bókajól sögunnar

Jakob Bjarnar skrifar
Vinsælustu höfundarnir í flokki skáldsagna. 
Vinsælustu höfundarnir í flokki skáldsagna. 

Fyrir viku var Ólafur Jóhann Ólafsson farinn að ógna Arnaldi á toppi listans en Arnaldur hefur rifið upp sokkana því hann eykur forskotið nú.

Arnaldur situr sem fyrr þéttur á velli í fyrsta sæti Bóksölulistans og sækir heldur í sig veðrið frá því fyrir viku en þá var Ólafur Jóhann Ólafsson farinn að ógna honum helst til mikið og kominn hættulega nálægt því að velta honum úr sæti. Þá var munurinn á milli þeirra innan við 3 prósent en nú er hann hins vegar um 10 prósent.

Stefnir í ein mestu bókajól sögunnar

Vísir birtir nú þriðja sinni þessarar bókavertíðar lista yfir söluhæstu bækurnar sem nú birtast taka til bóksölu 30. nóvember - 6. desember 2020. Hann byggir frá sölutölum frá eftirfarandi útsölustöðum bóka; A4, Bóksölu stúdenta, Bónus, Hagkaup, Samkaup verslana, Heimkaup, Forlagsverslunarinnar og Kaupfélags Skagfirðinga – það er í raun frá öllum helstu útsölustöðum bóka á landinu nema frá Eymundsson. 

Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut er sérfræðingur Vísis í öllu því sem snýr að bókum og bóksölu.

Þetta er listinn sem höfundar og útgefendur bíða eftir með öndina í hálsinum.

Bryndís Loftsdóttir hjá Fibut segir söluna glimrandi góða það sem af er vertíðar og útlit fyrir að þetta verði bestu bóksölujól síðan fjármálakreppan reið yfir landið.

„Þjóðin virðist alltaf kunna betur að meta bækur í þrengingum. Í þessari viku seldust ríflega 35 prósent fleiri bækur en í vikunni á undan og svona mun salan vonandi aukast áfram, alveg fram að jólum. Umhyggjusamir jólasveinar og íslenskir bókaunnendur hafa nú keypt um 150.000 bækur frá því í byrjun nóvember og helst viljum við auðvitað að allir njóti þeirrar íslensku jólahefðar að fá bók í jólagjöf.“

Konur leggja skáldskapinn undir sig

Ef litið er sérstaklega til skáldverkalistans, þá eru ekki miklar breytingar þar frá því í síðustu viku. Íhaldssemi bókakaupenda er söm við sig. Flokka má um helming þessara bóka til einhvers konar spennusagna. Viðtekið er orðið að horfa á heiminn í gegnum misskökk kynjagleraugu fyrir nærsýna og það hlýtur þá að eiga við hér eins og í öðru. Kynin skipta fyrstu 10 sætunum jafnt á milli sín en konur eiga svo 9 af 10 bókum þar á eftir.

„Það eru því aðeins 6 karlkyns rithöfundar á topp 20 skáldverkalistanum, ég hefði alveg viljað sjá meira jafnræði en auðvitað koma alltaf einhverjar sveiflur,“ segir Bryndís óvænt, eins og henni þyki nóg um. En í síðustu viku var tilkynnt um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þar voru konur í meirihluta og þá var einnig tilkynnt um tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, sem eingöngu eru ætluð konum.

Þeir söluhæstu ekki á listamannalaunum

Ekki virðist vera nein fylgni milli velgengni í bóksölu og viðurkenninga nema þá öfug:

„Fimm söluhæstu skáldverkahöfundar vikuna, fengu ekki úthlutuðum listamannalaunum í ár,“ segir Bryndís. „Það eru þó líklega tekjur af sölu verka erlendis sem kosta saltið í þeirra graut, kaupendur hér á landi eru einfaldlega of fáir til þess að fleiri en kannski 2-3 höfundar geti að staðaldri dregið fram lífið af tekjum verka sinna.“

Listamannalaun í ár fengu heldur ekki glæpasagnahöfundarnir Stefán Máni, Lilja Sigurðardóttir og Katrín Júlíusdóttir né meðhöfundur Auðar Jónsdóttur, Birna Anna Björnsdóttir.

Þetta er rannsóknarefni, að öfugt orsakasamhengi sé milli smekks þeirra sem kaupa bækurnar og svo hugmynda þeirra sem útdeila verðlaunum, viðurkenningum og starfslaunum listamanna; um hvaða gimbrar skuli setja á að hausti. Ef listamannalaunin eru hugsuð sem einhvers konar bót í lekt velferðarkerfið og/eða til jöfnunar, þá er þetta jákvætt.

Spútnikkhöfundar komnir í endurprentun

Eitt verkefna þeirra sem gefa út bækur er að spá í spilin og reyna að sjá fyrir sölu. Ljóst er að bóksala nú er miklu meiri en menn höfðu séð fyrir. Dæmi um það er bókin Fávitar eftir spútnik höfund og útgefanda vertíðarinnar, Sólborgu Guðbrandsdóttur, er uppseld en ný prentun er væntanleg í lok næstu viku. Bókin situr þó engu að síður í 7. sæti aðallistans þessa vikuna en er víða á þrotum í verslunum.

Gervilimrur Gísla Rúnars, er líka uppseld hjá útgefanda eftir einstakar móttökur. Önnur prentun er væntanleg í verslanir á næstu dögum. „Velgengni í bóksölu fylgja gjarnan miklar prentþrautir, hvað á að prenta mikið til viðbótar og hvenær næst sú prentun í verslanir? Þessi tími reynir bæði á reynslu og skyggnigáfu útgefenda,“ segir Bryndís.

Herra Hnetusmjör heldur ævisögum á floti

Barnabækur hafa oft verið meira áberandi á bóksölulistum og þá er mjög óvenjulegt að ekki rati nein ævisaga inn á topp 20 listann. Stutt er síðan (2016) að þær Ásdís Halla, Steinunn Sigurðardóttir og Vigdís Grímsdóttir röðuðu sér allar inn á topp 10 listann með ævisögur. Þetta er því nokkuð afgerandi breyting.

„En áður en einhverjir fara svo að hneykslast á því að mest selda ævisaga ársins virðist ætla að verða ævifrásögn hins 24 ára rappara, Árna Páls Árnasonar eða Herra Hnetusmjörs, þá vil ég bara segja, eftir lestur bókarinnar, að drengurinn átti ágæta innistæðu til bókaskrifa,“ segir Bryndís sem er ánægð með bókina og ánægð með að rapparinn skuli halda þessum flokki á floti.

„Fyrir utan hressandi innsýn í rappheiminn og smitandi ástríðu hans fyrir tónlist þá sýnir hann með mjög skírum hætti hvað snemmtæk íhlutun og markviss batavinna, ævina á enda, er mikilvæg og gjörbreytir lífsskilyrðum og tækifærum þeirra sem kljást við sjúkdóminn alkóhólisma. Það er ekki hægt annað en að dást að einlægni hans og hispursleysi í frásögnum úr neysluheimi samtímans og óska honum til hamingju með edrú árin fjögur. Örugglega ein besta forvarnarbókin í jólabókaflóðinu.“

Og það verða lokaorð í þessari yfirferð og rýni á listunum sjálfum sem sjá má hér neðar.


Topplistinn

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  5. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  6. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  7. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  8. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  9. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  10. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  11. Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson
  12. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  13. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  14. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  15. Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók -
  16. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  17. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  18. Dauðabókin - Stefán Máni
  19. Kökur - Linda Ben
  20. Barnaræninginn - Gunnar Helgason

Íslensk skáldverk

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  3. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  4. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  5. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  6. Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
  7. Dauðabókin - Stefán Máni
  8. Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
  9. Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  10. Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir
  11. Blóðberg - Þóra Karítas Árnadóttir
  12. 107 Reykjavík - Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir
  13. Blóðrauður sjór - Lilja Sigurðardóttir
  14. Sykur - Katrín Júlíusdóttir
  15. Hansdætur - Benný Sif Ísleifsdóttir
  16. Truflunin - Steinar Bragi
  17. Næturskuggar - Eva Björg Ægisdóttir
  18. Aprílsólarkuldi - Elísabet Kristín Jökulsdóttir
  19. Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir

Íslenskar barna- og ungmennabækur

  1. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  2. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  3. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
  4. Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson
  5. Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  6. Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
  7. Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
  8. Barnaræninginn - Gunnar Helgason
  9. Hetja - Björk Jakobsdóttir
  10. Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
  11. Vampírur, vesen og annað tilfallandi - Rut Guðnadóttir
  12. Hestar - Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring
  13. Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga - Kristín Helga Gunnarsdóttir
  14. Iðunn og afi pönk - Gerður Kristný
  15. Jól með Láru - Birgitta Haukdal
  16. Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
  17. Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
  18. Brandarar og gátur 5 - Huginn Þór Grétarsson
  19. Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin - Yrsa Sigurðardóttir
  20. Spurningabókin 2020 - Guðjón Ingi Eiríksson

Þýddar barna- og ungmennabækur

  1. Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók - Bókafélagið
  2. Verstu kennarar í heimi - David Walliams
  3. Dagbók Kidda klaufa 13 : Snjóstríðið - Jeff Kinney
  4. Ísskrímslið - David Walliams
  5. Jólasyrpa - Walt Disney
  6. Jól í Múmíndal - Tove Jansson
  7. Fótbolti - Meistaratatkar - Rob Colson
  8. Söguperlur fyrir svefninn - Setberg
  9. Ding! Dong! Komum að leika! - Astley Baker
  10. Jólaföndur : engin skæri, bara gaman - Unga ástin mín
  11. Milljarðastrákurinn - David Walliams
  12. Risaeðlugengið : Kappsundið - Lars Mæhle
  13. Sögutaskan mín - Isabelle Chauvet
  14. Ég njósna með Múmínsnáðnum - Tove Jansson
  15. Hundmann 2 - Taumaus - Dav Pilkey
  16. Lúkas ljónheppni - Kate Thomson
  17. Mannslíkaminn - Ryan Hobson
  18. Töfraeinhyrningurinn hennar Gurru gríss - Astley Baker
  19. Harry Potter og leyniklefinn - myndskr. - J.K. Rowling
  20. Gullráðgátan - Martin Wildmark

Fræði og almennt efni

  1. Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  2. Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
  3. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  4. Kökur - Linda Ben
  5. Íslenskir vettlingar - Guðrún Hannele Henttinen
  6. Skipulagsdagbók - Sólrún Diego
  7. Skipulag - Sólrún Diego
  8. Hrein karfa - Kjartan Atli Kjartansson
  9. Þegar heimurinn lokaðist - Davíð Logi Sigurðsson
  10. Bubbi Morthens - ferillinn í fjörtíu ár - Árni Matthíasson
  11. Kindasögur II - Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson
  12. Prjónað á mig og mína - Lene Holme Samsøe
  13. Fimmaurabrandarar 2 - Fimmaurafélagið
  14. Sumac - Þráinn Freyr Vigfússon
  15. Draumaland : Frá fæðingu til sex ára aldurs - Arna Skúladóttir
  16. Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi - Bergsveinn Ólafsson
  17. Brimaldan stríða - Steinar J. Lúðvíksson
  18. Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
  19. Fuglinn sem gat ekki flogið - Gísli Pálsson
  20. Þökk til þín - Áslaug Björt Guðmundardóttir

Þýdd skáldverk

  1. Kóngsríkið - Jo Nesbø
  2. Jól í Sumareldhúsi Flóru - Jenny Colgan
  3. Brúðkaup í desember - Sarah Morgan
  4. Silfurvængir - Camilla Läckberg
  5. Þeir sem græta góðu stúlkurnar - Mary Higgins Clark
  6. Uppljómun í eðalplómutrénu - Shokoofeh Azar
  7. Lygalíf fullorðinna - Elena Ferrante
  8. Leyfðu mér að segja þér sögu - Jorge Bucay
  9. Menntuð - Tara Westover
  10. Danskvæði um söngfugla og slöngur - Suzanne Collins

Ljóð og limrur

  1. Gervilimrur Gísla Rúnars - Gísli Rúnar Björgvinsson
  2. 140 vísnagátur - Páll Jónasson
  3. Látra-Björg - Helgi Jónsson
  4. Hetjusögur - Kristín Svava Tómasdóttir
  5. Draumstol - Gyrðir Elíasson
  6. Veirufangar og veraldarharmur - Valdimar Tómasson
  7. Yeats : svipmyndir af lífi og ljóðum - W.B. Yeats
  8. Allt uns festing brestur - Davíð Þór Jónsson
  9. 1900 og eitthvað - Ragnheiður Lárusdóttir
  10. Þagnarbindindi - Halla Þórlaug Óskarsdóttir

Ævisögur

  1. Herra Hnetusmjör - hingað til - Sóli Hólm
  2. Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson
  3. Berskjaldaður : Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást - Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
  4. Ellert - Ellert B. Schram og Björn Jón Bragason
  5. Dóttir - leið mín til tveggja heimsmeistaratitla - Katrín Tanja Davíðsdóttir og Rory McKiernan
  6. Vigdís Jack : Sveitastelpan sem varð prestsfrú - Gyða Skúladóttir
  7. Brosað gegnum tárin - Bryndís Schram
  8. Svo týnist hjartaslóð : Þroskasaga Betu Reynis - Valgeir Skagfjörð og Elísabet Reynisdóttir
  9. Fæddur til að fækka tárum - Káinn - Jón Hjaltason
  10. Siddi gull-ævisaga Sigmars Ó. Maríusonar gullsmiðs - Guðjón Ingi Eiríksson

Uppsafnað frá áramótum

  1. Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
  2. Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
  3. Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
  4. Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
  5. Vetrarmein - Ragnar Jónasson
  6. Útkall á ögurstundu - Óttar Sveinsson
  7. Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
  8. Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
  9. UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
  10. Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×