Menning

Tvær bækur sama höfundar tilnefndar

Jakob Bjarnar skrifar
Þessi eru tilnefnd í flokki skáldverka en oftast er það svo að mest spennan er um hverjir teljast verðugir á þeim vettvangi. Athygli vekur að Arndís Þórarinsdóttir er ekki aðeins tilnefnd í þessum flokki heldur á hún einnig bók í flokki barna- og ungmennabóka.
Þessi eru tilnefnd í flokki skáldverka en oftast er það svo að mest spennan er um hverjir teljast verðugir á þeim vettvangi. Athygli vekur að Arndís Þórarinsdóttir er ekki aðeins tilnefnd í þessum flokki heldur á hún einnig bók í flokki barna- og ungmennabóka.

Félag bókaútgefenda tilkynnti nú rétt í þessu um hvaða höfundar hljóta tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þar er eitt og annað sem kemur á óvart svo sem það að einn höfundur er tilnefndur fyrir sitthvort verkið.

Eftir því sem Vísir kemst næst hefur það ekki gerst áður í sögu verðlaunanna. Þar er um að ræða Arndísi Þórarinsdóttur fyrir annars vegar fyrstu ljóðabók sína Innræti og hins vegar Blokkin á heimsenda í flokki barna- og ungmennabóka, sem hún skrifaði ásamt Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur. Í þeim flokki vekur svo athygli að eingöngu konur eru tilnefndar. Sú var reyndar einnig raunin í fyrra en þá var Arndís einmitt meðal þeirra höfunda sem tilnefndir voru.

Nýstárlegt fyrirkomulag við val á nefndarfólki

Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Þetta er í 32. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna. Þeir sem vilja kynna sér fyrri tilnefningar geta skoðað þessa síðu hér

Fyrirkomulagi nefndarstarfa var bylt eftir að hafa verið í föstum skorðum undanfarin ár. En þá sátu nefndarmenn eigi lengur en í þrjú ár og urðu formenn síðasta ár sitt í nefndinni. Stjórn félagsins tilnefndi fólk og svo valdi skrifstofa félagsins úr þeim hópi. Félag íslenskra bókaútgefenda greip hins vegar til þess nú að auglýsa eftir nefndarfólki.

„Við leitum eftir einstaklingum á ólíkum aldri, með fjölbreyttan bakgrunn og menntun, til þess að velja athyglisverðustu bækur ársins í dómnefnd Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Laun fyrir nefndarsetu eru kr. 125.000 auk þess sem nefndarmeðlimir fá allar framlagðar bækur í sínum flokki til eignar. Starfstímabilið er frá 10. september til 25. nóvember 2020,“ sagði í tilkynningu frá félaginu. En útgefendur leggja fram bækur til umfjöllunar og kostar það 35 þúsund krónur á bók. 144 bækur voru lagðar fram af hálfu útgefenda.

Margir, þó aðallega konur, vildu í nefnirnar

Nokkur fjöldi, eða 273 sóttu um. Í frétt RÚV segir að meðalaldur þeirra sé 43 ár, sá elsti 80 ára en yngsti 10 ára. „Það vekur athygli að verulegur kynjahalli var á umsóknunum því 80 prósent umsækjenda voru konur. Fólk gat sótt um að komast í eina eða fleiri nefndir. Flestir eða 203 sóttust eftir því að sitja í íslensku skáldverkanefndinni, 165 vildu vera í barnabókanefndinni og 101 í verðlaunanefndinni fyrir fræðibækur og rit almenns efnis.“

Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút segir sérstaka verðlaunanefnd úr röðum útgefenda hafi grisjað út þrjátíu nöfn, tíu fyrir hverja og síðan var það skrifstofan sem valdi þrjá í hverja nefnd, níu alls. 

Og þá er að sjá hvernig þetta nýja fyrirkomulag hefur gefist. Viðbúið er að sitt sýnist hverjum þar um en oft hafa tilnefningarnar sætt harðri gagnrýni, að ómaklega hafi verið fram hjá einhverjum verðugum gengið. Undir hverri tilnefningu er stutt klausa frá dómnefnd þar sem lauslega er gerð grein fyrir því hvað hvert tiltekið verk þótti hafa sér til ágætis.

Flokkur skáldverka

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki skáldverka:


Arndís Þórarinsdóttir

Innræti

Útgefandi: Mál og menning

Í þessari fyrstu ljóðabók Arndísar Þórarinsdóttur er að finna leiftrandi lýsingarnar á meitluðum og frumlegum efnistökum sem skilja mikið eftir sig.


Auður Ava Ólafsdóttir

Dýralíf

Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

Heimspekilegar vangaveltur um lífið, dauðann og mannskepnuna sem dýrategund einkennir þessa sjöundu skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur. Persónusköpunin í þessum fallega texta er bæði heillandi og eftirminnileg.


Elísabet Jökulsdóttir 

Aprílsólarkuldi

Útgefandi: JPV útgáfa

Aprílsólarkuldi er tilfinningarík og ljóðræn frásögn um föðurmissi, ást, sorg og geðveiki. Næmni Elísabetar Jökulsdóttur sem sést hefur í ljóðum hennar skilar sér í vel í skáldsagnaforminu.


Jónas Reynir Gunnarsson

Dauði skógar

Útgefandi: JPV útgáfa

Jónas Reynir Gunnarsson tæpir á helstu málum samtímans í þessari þriðju skáldsögu sinni. Fjallað er á margræðan hátt um tengsl náttúru og manns, innri átök hans og hið óumflýjanlega í tilverunni.


Ólafur Jóhann Ólafsson 

Snerting

Útgefandi: Veröld

Í Snertingu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er dregin upp sannfærandi mynd af samfélaginu og aðstæðum fólks af ólíkum uppruna. Nútíð og fortíð er listilega fléttað saman þannig að úr verður skáldsaga sem skiptir máli.

...

Dómnefnd skipuðu:

Jóhannes Ólafsson, formaður dómnefndar, Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Hildur Ýr Ísberg

Fræðibækur og rit almenns efnis

Þeir sem tilnefndir voru í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis.

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:

Erla Hulda Halldórsdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir

Konur sem kjósa - aldarsaga

Útgefandi: Sögufélag

Bókin er afrakstur mikilvægrar og vandaðrar fræðilegrar rannsóknar á jafnréttisbaráttunni á Íslandi í 100 ár, en einnig á stjórnmála- og menningarsögunni. Uppsetning bókarinnar er áhugaverð og hönnunin nýstárleg þar sem fjöldi ljósmynda, veggspjalda og úrklippa eru notaðar til að glæða söguna lífi.


Gísli Pálsson

Fuglinn sem gat ekki flogið

Útgefandi: Mál og menning

Aldauða dýrategunda hefur ekki verið gefinn mikill gaumur til þessa hér á landi. Því er mikill fengur að þessari bók, sem beinir sjónum okkar m.a. að útrýmingarhættu og margvíslegum umhverfisvanda sem við stöndum frammi fyrir. Geirfuglabækur tveggja breskra fræðimanna sem héldu í Íslandsleiðangur 1858 og höfundur hefur rannsakað í þaula varpa nýju ljósi á sögu og örlög síðustu geirfuglanna við strendur landsins.


Kjartan Ólafsson

Draumar og veruleiki - Um Kommúnistaflokkinn og Sósíalistaflokkinn

Útgefandi: Mál og menning

Verkið er yfirgripsmikið og varpar áhugaverðu ljósi á stjórnmála- og stéttasögu vinstri manna hér á landi á 20. öldinni af miklu innsæi og hreinskilni. Um er að ræða tímamótarit þar sem nýjar og áður óaðgengilegar heimildir eru nýttar.


Pétur H. Ármannsson

Guðjón Samúelsson húsameistari

Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag

Vandað og löngu tímabært ritverk um fyrsta Íslendinginn sem lauk háskólaprófi í byggingarlist á síðustu öld. Líf Guðjóns Samúelssonar húsameistara var helgað starfi hans og list. Saga hans og ævistarfsins er vel og skilmerkilega rakin í bókinni. Höfundur byggir á víðtækum rannsóknum sínum og djúpum skilningi á viðfangsefninu. Fjölmargar myndir og uppdrættir prýða bókina.


Sumarliði R. Ísleifsson

Í fjarska norðursins : Ísland og Grænland – viðhorfasaga í þúsund ár

Útgefandi: Sögufélag

Höfundi tekst að færa lesendum efni rannsóknar sinnar á mjög aðgengilegan og skýran hátt, þar sem hann varpar ljósi á rúmlega 1000 ára viðhorfasögu gagnvart íbúum þessara eyja. Bókin er glæsilegt og eigulegt rit, fallega hönnuð og vel myndskreytt.

...

Dómnefnd skipuðu:

Einar Örn Stefánsson, formaður dómnefndar, Björn Pétursson og Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir

Barna- og ungmennabækur

Þær sem tilnefndar voru í flokki barna- og ungmennabóka.

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka:

Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir

Blokkin á heimsenda

Útgefandi: Mál og menning

Frumleg og athyglisverð bók. Fyndin og áreynslulaus frásögn með snjöllum lausnum sem bera hugmyndaauðgi höfunda glöggt vitni. Mikilvægi samheldni og vináttu eru ákveðið meginstef í sögu sem deilir með sterkum hætti á neysluhyggju Vesturlanda. Loftslagsváin er alltumlykjandi en sterkum boðskapnum er aldrei þröngvað upp á lesandann heldur er hann borinn snyrtilega fram með húmor í aðalhlutverki.


Hildur Knútsdóttir

Skógurinn

Útgefandi: JPV útgáfa

Djúp og afar vel skrifuð spennusaga um úthugsaða ævintýraveröld sem höfundur hefur lagt mikla vinnu í að skapa og gera trúverðuga, með heillandi vangaveltum um vísindin og hið yfirnáttúrulega. Lesandinn er rækilega minntur á hvernig nútíma lifnaðarhættir gætu leitt mannkynið á glapstigu, án þess að boðskapurinn yfirtaki skemmtilega og oft æsispennandi atburðarás.


Kristín Björg Sigurvinsdóttir

Dulstafir - Dóttir hafsins

Útgefandi: Björt – Bókabeitan

Áhrifarík bók þar sem höfundur dregur upp ljóslifandi mynd af fullsköpuðum ævintýraheimi. Sorg og missi eru gerð falleg skil sem og leitinni að hugrekki og innri styrk. Frásögnin er örugg, lýsandi og afar myndræn en þó skilur höfundur eftir rými til túlkunar og lesturs á milli línanna. Framhaldsins verður beðið með eftirvæntingu.


Lóa H. Hjálmtýsdóttir

Grísafjörður

Útgefandi: Salka

Hlý og afar skemmtileg saga, raunsæ en þó með heillandi ævintýrablæ. Saga um hversdagsleikann með öllum sínum áskorunum og fólkið sem skiptir okkur mestu máli, en líka vináttu úr óvæntri átt, hjálpsemi og það að engum er alls varnað. Vandaðar myndir höfundar bæta heilmiklu við söguna ásamt fallegum frágangi og sniðugum fylgihlutum.


Yrsa Sigurðardóttir

Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin

Útgefandi: Veröld

Heilsteypt og drepfyndin bók þar sem einstakt hugmyndaflug fær að blómstra. Óhefðbundinn sögumaður nýtur sín afar vel í bráðsniðugum lýsingum höfundar á tilfinningalífi hans og sýn á heiminn. Skemmtileg ærslasaga með klassískan boðskap um gildi sannrar vináttu. Einfaldar en stórskemmtilegar myndir falla vel að textanum og gera söguna enn betri.

...

Dómnefnd skipuðu:

Hrund Þórsdóttir, formaður dómnefndar, Einar Eysteinsson og Katrín Lilja Jónsdóttir,






Fleiri fréttir

Sjá meira


×