Nauðgaði tvisvar sömu nótt en á skilorði vegna dráttar á máli Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. nóvember 2020 13:37 Landsréttur. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur staðfest 18 mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem gerðist sekur um að nauðga fyrrverandi unnustu sinni í tvígang. Landsréttur mildar hins vegar refsingu að því leyti að dómurinn skuli skilorðsbundinn til tveggja ára vegna verulegs dráttar á meðferð málsins.
Maðurinn hafði í héraðsdómi fengið 18 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm auk þess sem honum var gert að greiða þolanda, fyrrverandi unnustu sinni, 1,2 milljónir í miskabætur. Landsréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms um sakfellingu og greiðslu miskabóta og málskostnaðar en kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að fresta skuli fullnustu refsingar skilorðsbundið til tveggja ára. Brotið átti sér stað í janúar 2015 en ákæra var ekki gefin út í málinu fyrr en 2018 og var dómur héraðsdóms kveðinn upp 1. febrúar í fyrra. „Ákærða verður með engum hætti kennt um þennan drátt á málsmeðferðinni,“ segir í niðurstöðum Landsréttar en drátturinn sem verið hefur á meðferð málsins sé í andstöðu við meginreglur sakamálaréttarfars og mannréttindasáttmála Evrópu. Ekki sé hægt að kenna ákærða um drátt málsins „Við ákvörðun refsingar ákærða verður ekki fram hjá því litið að málið hefur dregist úr hömlu. Nú eru liðin fimm ár og rúmlega 10 mánuðir frá broti ákærða en brotaþoli lagði fram kæru á hendur honum 19. janúar 2015. Rannsókn málsins virðist hafa lokið 25. september 2015 en þrátt fyrir það var málið sent héraðssaksóknara ári síðar, eða 29. september 2016. Rúmu ári síðar eða 4. október 2017 sendi héraðssaksóknari málið aftur til lögreglu til frekari rannsóknar,“ segir ennfremur í niðurstöðum Landsréttar. Að lokinni þeirri rannsókn hafi málið verið sent héraðssaksóknara að nýju sem felldi málið niður. Konan kærði þá ákvörðun til ríkissaksóknara sem felldi ákvörðun héraðssaksóknara úr gildi. Í framhaldinu var gefin út ákæra í maí 2018 og dómur féll í febrúar 2019, rúmlega fjórum árum eftir að kæra hafði verið lögð fram. „Ekkert hefur komið fram um að ákærða verði kennt um þann mikla drátt sem þannig varð á málinu. Hafa engar skýringar komið fram á honum,“ segir í dómi héraðsdóms. Ríkissaksóknari skaut málinu til Landsréttar nokkrum dögum eftir að sá dómur féll en ákæruvaldið krafðist þess að refsing yrði þyngd. Baðst fyrirgefningar og sagðist hafa verið „of ákafur“ við brotaþola Líkt og áður segir var brotið framið í janúar 2015. Þolandi leitaði á neyðarmóttöku en skoðun leiddi í ljós áverka sem þykja hafa komið til vegna samfara sem „kona er ekki tilbúin fyrir.“ „Brotaþoli segir sjálf svo frá að ákærði hafi um nóttina nauðgað sér, hún hafi eftir það sofnað en vaknað við að hann væri byrjaður aftur. Því hafi lokið með annarri nauðgun. Aftur hafi hún sofnað. Enn hafi hún vaknað við að ákærði væri að reyna eitthvað að nýju. Þá hafi hún ekki gert neitt heldur bara legið,“ segir í dómi héraðsdóms. Daginn eftir hafi þolandi keypt handa þeim mat, þau borðað saman og að beiðni ákærða hafi hún veitt honum munnmök. Þau kvöddust svo með kossi. Fyrir dómi var konan spurð hvers vegna hún hefði ekki farið strax. Sagðist hún ekki vita nákvæmlega hvað hún hafi verið að hugsa en hún hafi verið í sjokki og hafi ekki viljað búa til vandamál. Meðal gagna málsins voru sms-skilaboð frá manninum til brotaþola þar sem hann segist vilja spjalla aðeins „eftir þetta,“ hann vilji sættast og hann voni að brotaþoli geti fyrirgefið sér. Hann segir ennfremur í skilaboðunum að hann hafi verið „of ákafur við [brotaþola] þarna í endann.“ Hann vilji bæta henni það upp einhvern veginn frekar en að hætta að tala við hana.
Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira