Innlent

Til­kynnt um fjórar líkams­á­rásir

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla þurfti að sinna fjölda útkalla á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt.
Lögregla þurfti að sinna fjölda útkalla á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna fjögurra líkamsárása í umdæmi sínu í gærkvöldi.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að með tíu mínútna millibili, skömmu eftir klukkan 23 í gærkvöldi, hafi verið tilkynnt um tvær líkamsárásir í miðborginni. Var annar handtekinn, en meintur árásarmaður í hinni árásinni var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Í síðarnefndu árásinni var um minniháttar meiðsl að ræða, en ekkert segir til um meiðsl í þeirri fyrrnefndu.

Þá segir einnig frá tveimur líkamsárásum í öðrum sveitarfélögum en Reykjavík á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Var árásarmaður í báðum tilvikum handtekinn og gista þeir fangageymslu.

Sögðust Covid-smitaðir

Í tilkynningu segir einnig frá því að tveir menn hafi verið á milli verslana í miðborg Reykjavíkur og sagst vera Covid-smitaðir. Það reyndist þó ekki rétt og voru þeir látnir lausir að loknu samtali.

Einnig þurfti lögregla að sinna máli þar sem leigubílstjóri hafi óskað aðstoðar eftir að farþegi neitaði að borga fargjaldið. Sömuleiðis var tilkynnt um þjófnað í verslun, skemmdir á tveimur stætóskýlum og svo voru töluvert um útköll vegna ölvunar og hávaða.

Eldur í leiktækjum á skólalóð

Þá var tilkynnt um eld í leiktækjum á lóð skóla en þar hafði eldurinn komst í klæðningu íþróttahússins. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins segir að um hafi verið að ræða Vatnsendaskóla í Kópavogi. Var um minniháttar skemmdir að ræða, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Góðan dag. Síðasta sólarhringinn voru 114 sjúkraflutningar þar af 24 forgangs og 14 vegna covid-19, útköll á dælubíla...

Posted by Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. on Wednesday, 4 November 2020


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×