Lífið

Úr­slitin réðust á loka­spurningunni og fagnaðar­lætin rosa­leg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega hörð og spennandi viðureign.
Virkilega hörð og spennandi viðureign.

Í fyrstu viðureigninni í 8-liða úrslitunum í Kviss á Stöð 2 á laugardagskvöldið mættust FH og Völsungur.

Sem fyrr voru þau Jón Jónsson og Björg Magnúsdóttir í liði Fimleikafélagsins en Snæbjörn Ragnarsson og Birgitta Haukdal í liði Völsungs.

Keppnin var heldur betur spennandi og réðust úrslitin á lokaspurningunni og þá var spurt um dýr. Liðin gátu fengið þrjár vísbendingar en þess var ekki þörf.

Hér að neðan má sjá gríðarlega spennandi lokaspurningu í viðureigninni og sjá hvernig sigurliðið fagnaði að henni lokinni.

Klippa: Úr­slitin réðust á loka­spurningunni og fagnaðar­lætin rosa­leg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×