Innlent

„Þetta sem gerðist á Landakoti er auðvitað grafalvarlegt“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra Vísir/Sigurjón

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir fráfall einstaklings í dag sem smitaðist af Covid-19 í hópsýkingunni á Landakoti og þróun sýkingarinnar þar sem æ fleiri reynast smitaðir gera málið æ alvarlegra.

„Alvarleiki málsins verður meiri eftir því sem áhrifin þyngjast og spítalinn er klár á því eins og samfélagið allt. Því miður er þessi faraldur þannig að hann heggur bæði í heilsu og líf og þess vegna er svo mikilvægt að freista þess að ná utan um hann og þetta sem gerðist á Landakoti er auðvitað grafalvarlegt,“ segir Svandís. 

Treystir yfirstjórn og starfsfólki spítalans 

Eins og fram hefur komið hafa komið upp smit hjá starfsfólki og sjúklingum á fjórum deildum Landakots. Heimsóknir aðstandenda voru leyfðar og næturvakt fór á milli tveggja deilda áður en hópsýkingin kom upp í síðustu viku en í fyrri bylgju faraldursins var það óheimilt vegna sýkingavarna. Fram hefur komið að hópsmitið nú hafi komið starfsfólki að óvörum því miklar sóttvarnir hafi verið viðhafðar. Þeir starfsmenn sem fréttastofa hefur haft samband við vilja fá ítarlega greiningu á því hvað gerðist.

„Ég hef ekki ástæðu til að ætla annað en stjórn spítalans fari ofan í saumanna á allri þessari atburðarás. Ég ber fullt traust til forystu Landspítalans og það er engin betur til þess fallin en hún til að stýra spítalanum. Allt starfsfólk er að leggja sig fram, en þessi veira er algjört skaðræði og eina leiðin til að ná tökum á henni er með þolgæði og úthaldi,“ segir Svandís. 

Sífellt fleiri smitast

Nú hafa alls 57 starfsmenn og 60 sjúklingar greinst smitaðir í tengslum við hópsýkinguna á Landakoti eða 117 manns. Flestir hafa smitast á Landakoti en einnig á Reykjalundi og Sólvöllum. Þá hefur komið fram hjá sóttvarnalækni að hópsýkingin sé farin að dreifa sér í samfélaginu. 

Tugir starfsmanna sem voru í vinnusóttkví hafa greinst smitaðir í vikunni, þá er fólk í vinnu í sóttkví en í hlífðarfatnaði og með veirumaska sem gefur enn meiri vörn en hefðbundinn maski. 

Aðspurð um hvort það geti verið hætta á að fólk smiti þó það sé í slíkum hlífðarfatnaði segir Svandís: 

„Þegar ástandið er eins og núna, það er heimsfaraldur og neyðarstig á Landspítalanum þá hefur í raun og veru farsóttarnefnd Landspítalans tekið  stjórnin á því sem þar fer fram ásamt forstjóra spítalans. Þar er meðal annars fjallað um sóttvarnir og ég held að það sé engin í landinu betur til þess fallin en að halda utan um þessi mál en einmitt þau og ég treysti spítalanum í þessu máli,“ segir Svandís.  

 Aðspurð um hvort eðlilegt að aðstandendur hafi fengið heimsækja sjúklinga á Landakoti en svo hefur verið frá því í sumar og þar til hópsýkingin í síðustu viku kom upp, svarar Svandís. 

„Við erum alltaf endurmeta aðgerðir okkar. Við gripum til mjög afgerandi aðgerða varðandi heimsóknarbann í fyrstu bylgju faraldursins.  Við nálguðumst það svo með öðrum hætti í sumar í samstarfi við hjúkrunarheimilin því það voru fleiri sjónarmið sem komu til skoðunnar en sóttvarnarsjónarmiðin. Það er sjónarmið sem lúta að andlegri heilsu sjúklinga og vellíðan og þau þarf líka að skoða ig virða,“ segir Svandís. 

Hún segir jafnframt að  uppbygging sóttvarnahólfa á spítalanum lúti stjórn spítalans og sé ekki á sínu borði. 

Alvarlegt að hjarta íslenskrar heilbrigðisþjónustu sé á neyðarstigi

„Það að flaggskip okkar í heilbrigðisþjónustu sjálfur Landspítalinn sé nú kominn á neyðarstig mun örugglega hafa áhrif um allt samfélagið því þetta er öryggisventill okkar þegar kemur að alvarlegum heilsufarsvanda. Það er mjög alvarleg staða komin upp þegar þessi staður, þetta hjarta íslenskrar heilbrigðisþjónustu er komið á neyðarstig,“ segir Svandís að lokum. 


Tengdar fréttir

117 smitaðir vegna Landakots

Hundrað og sautján hafa greinst með kórónuveiruna sem tengjast hópsýkingunni á Landakoti. Um 60 sjúklinga er að ræða og 57 starfsmenn.

Starfs­fólk í sótt­kví B á Landa­koti byrjað að veikjast

Starfsmenn á Landakoti unnu á fleiri en einni deild þegar hópsýkingin kom upp í síðustu viku, ólíkt því sem var í vor þegar fólki var óheimilt að fara á milli deilda vegna sýkingavarna. Þetta herma heimildir fréttastofu. Starfsmenn telja eðlilegt að spítalinn fari í rótargreiningu á hópsýkingunni.

Segja engan fót fyrir ágreiningi um athugun á hópsýkingu

Landspítali og Embætti landlæknis segja Landspítala skoða hópsýkinguna á Landakoti með smitrakningu og njóti í því verkefni fulltingis smitrakningarteymis almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Af niðurstöðu þeirrar vinnu verði lærdómur dreginn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×