Aðeins nemendur og kennarar miðstigs Oddeyrarskóla í sóttkví Kjartan Kjartansson skrifar 16. október 2020 18:05 Í Oddeyrarskóla eru 195 nemendur og 45 starfsmenn. Oddeyrarskóli
Nemendur og kennarar miðstigs í Oddeyrarskóla á Akureyri fara í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp hjá einum nemendanna. Aðrir nemendur og kennarar við skólann sem voru í úrvinnslusóttkví eru nú lausir úr henni. Smitrakning í tengslum við smitið í skólanum er enn í gangi. Í Facebook-færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að henni sé nánast lokið og niðurstaðan sé sú að nemendur og kennarar á miðstigi fari í sóttkví en aðrir nemendur og kennarar ekki. Allir voru settir í úrvinnslusóttkví eftir að smitið greindist. Í tilkynningu frá Oddeyrarskóla í dag kemur fram að hann verði lokaður mánudaginn 19. október vegna smitsins. Í kjölfarið tæki við haustfrí út næstu viku. Í Oddeyrarskóla eru 195 nemendur og 45 starfsmenn. Þær aðgerðir sem verður farið í á þessu stigi í samráði við almannavarnir eru: Allir nemendur í 5. 6. og 7. bekk fara í sóttkví og verða boðaðir í sýnatöku upp úr miðri næstu viku. Allir starfsmenn á miðstigi, kennarar og stuðningsfulltrúar og allir þeir sem hafa verið í beinum tengslum við hin smitaða í fimmtán mínútur eða lengur fara í sóttkví. Úrvinnslusóttkví er því aflétt hjá öðru starfsfólki en um að gera að fara að öllu með gát hér eftir sem hingað til. Skólinn verður eftir sem áður lokaður á mánudag til að takmarka umgengni. Frístund verður lokuð alla næstu viku þar sem margir starfsmenn eru í sóttkví.
Akureyri Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Oddeyrarskóla lokað og allir í úrvinnslusóttkví eftir smit Oddeyrarskóla á Akureyri hefur verið lokað og sætir nú allt starfsfólk og nemendur úrvinnslusóttkví eftir að nemandi á miðstigi greindist með staðfest smit af Covid-19. 16. október 2020 11:33 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Sjá meira
Oddeyrarskóla lokað og allir í úrvinnslusóttkví eftir smit Oddeyrarskóla á Akureyri hefur verið lokað og sætir nú allt starfsfólk og nemendur úrvinnslusóttkví eftir að nemandi á miðstigi greindist með staðfest smit af Covid-19. 16. október 2020 11:33