Lífið

Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands gagnrýnd fyrir klæðaburð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
finnland
Instagram/Trendi

Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, sætti gagnrýni um helgina vegna ljósmyndar sem birtist af henni í tískutímaritinu Trendi. Sanna var í forsíðuviðtali í blaðinu og á einni myndanna sem birtist með viðtalinu klæðist hún jakka án þess að vera í skyrtu eða sjáanlegum bol innan undir. Þetta þótti mörgum óviðeigandi og lýstu yfir hneykslan sinni yfir myndinni. 

View this post on Instagram

Ylpeänä esittelemme: lokakuun Trendin kannessa loistaa mieletön @sannamarin Pääministeri Sanna Marinilla on eturivin paikka esimerkkinä, esikuvana, asioiden muuttajana ja vaikuttajana. Työ on paineistettua, mutta hyvät unenlahjat ja rautaiset hermot auttavat. Mutta Marin tunnustaa myös, että uupumuksen tunteet saattavat tulla myöhemmin: On selvää, että nämä vuodet jättävät jälkensä. Tämä ei ole tavallista työtä eikä tavanomaista elämää vaan raskasta monellakin tavalla. Voi olla, että paine ja uupumus kertyvät ja tulevat myöhemmin. Tilanteissa on ollut pakko laittaa tunteet sivuun, mutta kyllähän ne kasautuvat. Lue kiinnostava haastattelu kokonaisuudessaan tänään lehtihyllyille saapuneesta Trendistä! Antoisia lukuhetkiä! Kuva: @jonaslundqvist Tyyli: @suvipout

A post shared by Trendi & Lily (@trendimag) on

Finnskar konur tóku sig þá til og byrjuðu að birta myndir af sér í svörtum jökkum og jafnvel með hálsmen líka, líkt og Sanna gerir á myndum sem birtumst í tímaritinu. Er augljóst að þær standa með henni og fagna hennar ákvörðun að klæða sig eins og hún vill.  Þema tölublaðsins var hugrekki en Marin er þekkt fyrir að vera ákveðin og skoðanasterk. Hún tók 34 ára gömul við embætti á síðasta ári og er yngsti sitjandi forsætisráðherra í heimi. 

Margar konur hafa birt stuðningsyfirlýsingar síðustu daga þar sem þær segja að fagmennska eða hæfni einstaklings eigi aldrei að tengjast hálsmáli á fötum. Allar konur, líka þær sem eru í valdastöðum, eigi að geta látið sjást í húð á myndum án þess að vera gagnrýndar. 

Konur á öllum aldri hafa síðustu daga endurbirt umdeildu mynd Trendi eða deilt myndum af sér í svörtum jökkum, þar sem í flestum tilfellum sést í brjóstin á þeim. Nokkrir karlar hafa líka tekið þátt. Femínistar hafa tekið yfir samfélagsmiðla og kæft gagnrýnina niður með mjög táknrænum hætti. 

Tímaritið Trendi hefur svo deilt myndunum áfram á sinni síðu, til að vekja enn meiri athygli á málefninu. Á meðal þeirra sem hafa tekið þátt í herferðinni er Marta Valtovirta, framkvæmdastjóri og eigandi tískumerkisins sem forsætisráðherrann klæðist á myndinni.

Hægt er að skoða hundruð mynda á Instagram undir merkingunni #imwithsanna en nokkrar þeirra má sjá hér fyrir neðan. 

View this post on Instagram

Viikonloppuna pääministerimme joutui arvostelun kohteeksi minkäs muun kuin pukeutumisensa takia. Käsittämätöntä, että vielä vuonna 2020 pitää muistutella, että naisten uskottavuutta ei mitata kaula-aukon syvyydellä. Tietynlainen pukeutuminen tai naistenlehdissä esiintyminen ei tee kenestäkään pätevää tai epäpätevää. Ei tyhmempää tai fiksumpaa. Sanna Marinia on myös kritisoitu siitä, eikö hänellä ole tärkeämpääkin tekemistä kuin poseerata naistenlehdissä. Mielestäni on vain hyvä, että politiikasta ja yhteiskunnallisista aiheista puhutaan muuallakin kuin A-studiossa. Politiikka kuuluu kaikille ja koskee meitä kaikkia ja on hyvä jos nämä aiheet tuodaan ihmisiä lähelle. Naistenlehtiä tykätään morkata myös sijoittamispiireissä. Nyt on kupla lähellä kun naistenlehdissäkin puhutaan sijoittamisesta. Pyh, sanon minä! Niin sijoittaminen kuin politiikka ovat ihan tavallisia asioita ja niistä kuuluu puhua arkipäiväisesti ihan kaikkialla. Se ei ole keneltäkään pois! #imwithsanna

A post shared by Jasmin Hamid (@hamidjasmin) on

View this post on Instagram

#imwithsanna #naisvihanäkyväksi #trendimag

A post shared by Aliisa Perikangas (@a.perikangas) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×