Handbolti

Spáin fyrir Olís-deild karla 2020-21: Leggja allt undir til að vinna þann stóra (1.-3. sæti)

Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
olisolisss

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með þremur leikjum í dag, fimmtudaginn 10. september.

Á mánudaginn skoðuðum við botnbaráttuna, í fyrradag liðin sem berjast um síðasta lausa sætið í úrslitakeppninni, í gær liðin sem freista þess að ná heimavallarrétti í úrslitakeppninni og nú er komið að liðunum sem berjast um deildarmeistaratitilinn. 

Að okkar mati eru Haukar, Valur og FH með bestu lið landsins og líklegust til afreka á tímabilinu sem hefst í dag. Litlar breytingar hafa orðið á þessum liðum frá síðasta tímabili og Haukar eru klárlega sterkari en í fyrra með komu þriggja leikmanna úr atvinnumennsku, m.a. Björgvins Páls Gústavssonar.

Það vantar ekkert upp á metnaðinn hjá Haukum, Val og FH og krafan á þessum bæjum er að berjast um alla þá titla sem í boði. Og það er ekkert sem bendir til annars en sú verði raunin í vetur. 

Ein bestu kaup sem FH hefur gert er þegar liðið fékk línumanninn Ágúst Birgisson frá Aftureldingu.vísir/vilhelm

FH í 3. sæti: Sama lið og sömu væntingar

FH-ingar tefla fram nánast sama liði og á síðasta tímabili og kjarninn er sá sami undanfarin ár. Og meðan hann samanstendur af Ásbirni Friðrikssyni, Einari Rafni Eiðssyni, Ágústi Birgissyni og Arnari Frey Ársælssyni verður FH í og við toppinn.

Sigursteinn Arndal er á sínu öðru tímabili sem þjálfari FH en hann tók við af Halldóri Sigfússyni sem stýrði liðinu í fimm ár. Í fyrra var FH í 2. sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Vals, þegar keppni var hætt vegna kórónuveirufaraldursins. FH-ingar voru brokkgengir fyrir áramót en urðu betri eftir því sem leið á tímabilið.

FH skoraði næstflest mörk í Olís-deildinni á síðasta tímabili og aðeins fjögur lið fengu á sig færri mörk. Þýski markvörðurinn Phil Döhler þurfti aðlögunartíma en varð betri með hverjum leiknum og aðeins Valur og Haukar voru með betri hlutfallsmarkvörslu á síðasta tímabili. Döhler ætti að verða enn betri á þessu tímabili en á því síðasta.

FH-liðið er þétt og vel mannað og þarf engan tíma til að stilla saman strengi í ljósi lítilla breytinga á hópnum. Þeir hafa því enga afsökun fyrir því að byrja ekki af fullum krafti og senda skilaboð strax í upphafi móts.

Hversu langt síðan að FH...

  • ... varð Íslandsmeistari: 9 ár (2011)
  • ... varð deildarmeistari: 3 ár (2017)
  • ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 0 ár (2020)
  • ... varð bikarmeistari: 1 ár (2019)
  • ... komst í bikarúrslit: 1 ár (2019)
  • ... komst ekki í úrslitakeppni: 10 ár (2010)
  • ... komst í undanúrslit: 2 ár (2018)
  • ... komst í lokaúrslit: 2 ár (2018)
  • ... féll úr deildinni: 14 ár (2006)
  • ... kom upp í deildina: 12 ár (2008)

Gengi FH í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 2. sæti í deildinni
  • 2018-19 4. sæti í deildinni
  • 2017-18 3. sæti í deildinni
  • 2016-17 Deildarmeistari
  • 2015-16 6. sæti í deildinni
  • 2014-15 4. sæti í deildinni
  • 2013-14 4. sæti í deildinni
  • 2012-13 2. sæti í deildinni
  • 2011-12 2. sæti í deildinni

Gengi FH í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
  • 2018-19 Átta liða úrslit
  • 2017-18 2. sæti
  • 2016-17 2. sæti
  • 2015-16 Átta liða úrslit
  • 2014-15 Átta liða úrslit
  • 2013-14 Undanúrslit
  • 2012-13 Undanúrslit
  • 2011-12 2. sæti

HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur FH 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk skoruð í leik - 2. sæti (30,1)
  • Skotnýting - 6. sæti (60,6%)
  • Vítanýting - 9. sæti (72,7%)
  • Hraðaupphlaupsmörk - 2. sæti (72)
  • Stoðsendingar í leik - 3. sæti (12,3)
  • Tapaðir boltar í leik - 1. sæti (7,6)

Vörn og markvarsla FH 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk fengin á sig í leik - 5. sæti (26,8)
  • Hlutfallsmarkvarsla - 3. sæti (33,8%)
  • Varin víti - 2. sæti (15)
  • Stolnir boltar - 2. sæti (93)
  • Varin skot í vörn - 3. sæti (53)
  • Lögleg stopp í leik - 3. sæti (21,1)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Eiríkur Guðni Þórarinsson frá FH

Farnir:

  • Jóhann Birgir Ingvarsson til HK
  • Sigurður Dan Óskarsson til Stjörnunnar

Líklegt byrjunarlið

  • Markvörður: Phil Döhler
  • Vinstra horn: Arnar Freyr Ársælsson
  • Vinstri skytta: Bjarni Ófeigur Valdimarsson
  • Miðja: Ásbjörn Friðriksson
  • Hægri skytta: Einar Rafn Eiðsson
  • Hægra horn: Birgir Már Birgisson
  • Lína: Ágúst Birgisson
Ásbjörn Friðriksson er jafnan í hópi markahæstu leikmanna Olís-deildarinnar.vísir/daníel

Verður að eiga gott tímabil

Ef Ásbjörn Friðriksson er leiðtoginn í þínu liði ertu í góðum málum. Hann er með meirapróf í að stýra handboltaliði og hefur fullkominn skilning á því hvenær hann á koma öðrum inn í leikinn og hvenær hann á sjálfur að taka af skarið. Hefur verið einn besti leikmaður Olís-deildarinnar undanfarin ár og það er ólíklegt að einhver breyting verði þar á í vetur.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Rúnar Sigtryggsson fer yfir möguleika FH í Olís-deild karla í vetur.

Klippa: FH 3. sæti
Deildarmeistararnir mæta með sterkt lið til leiks líkt og síðustu ár.vísir/bára

Valur í 2. sæti: Meiri samkeppni en möguleikarnir fyrir hendi

Valsmenn voru á toppi Olís-deildarinnar þegar keppni var hætt á síðasta tímabili og voru krýndir deildarmeistarar. Þeir unnu þar með fyrsta titilinn sinn undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar. 

Síðasta tímabil byrjaði reyndar alls ekki vel og Valur tapaði fjórum af fyrstu sex deildarleikjum sínum, þar af þremur með einu marki. Þetta voru því aðeins smá byrjunarörðugleikar því Valsmenn unnu þrettán af síðustu fjórtán deildarleikjum sínum og gerðu eitt jafntefli, jafnvel þótt þeir hafi misst Ými Örn Gíslason til Rhein-Neckar Löwen eftir EM.

Litlar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Vals. Daníel Freyr Andrésson er reyndar farinn úr markinu og í hans stað fengu Valsmenn Martin Nagy, 21 árs Ungverja. Þá er Tumi Steinn Rúnarsson kominn aftur heim í Val og liðið fékk Þorgeir Bjarka Davíðsson til að deila stöðu hægri hornamanns með Finni Inga Stefánssyni.

Spurningarmerkin hjá Val eru aðallega tvö: markvarslan og línustaðan. Nagy er óskrifað blað og Einar Baldvin Baldvinsson, sem er kominn aftur frá Selfossi, var slakur í fyrra. Þorgils Jón Svölu Baldursson sló í gegn í vörn Vals í fyrra en það vantar sóknarslagkraft á línuna hjá Val. Þá myndi Snorri Steinn ekki slá hendinni á móti því að lykilmenn eins og Róbert Aron Hostert, Agnar Smári Jónsson og Magnús Óli Magnússon myndu haldast heilir.

Valsmenn eru ógnarsterkir og með mestu breiddina í deildinni. Þeir vilja og verða í baráttu um alla titla sem í boði eru.

Hversu langt síðan að Valur ... .

  • .. varð Íslandsmeistari: 3 ár (2017)
  • ... varð deildarmeistari: 0 ár (2020)
  • ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 0 ár (2020)
  • ... varð bikarmeistari: 3 ár (2017)
  • ... komst í bikarúrslit: 1 ár (2019)
  • ... komst ekki í úrslitakeppni: 7 ár (2013)
  • ... komst í undanúrslit: 1 ár (2019)
  • ... komst í lokaúrslit: 3 ár (2017)
  • ... féll úr deildinni: 58 ár (1962)
  • ... kom upp í deildina: 55 ár (1965)

Gengi Vals í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 Deildarmeistari
  • 2018-19 3. sæti í deildinni
  • 2017-18 4. sæti í deildinni
  • 2016-17 7. sæti í deildinni
  • 2015-16 2. sæti í deildinni
  • 2014-15 Deildarmeistari
  • 2013-14 3. sæti í deildinni
  • 2012-13 7. sæti í deildinni
  • 2011-12 6. sæti í deildinni

Gengi Vals í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
  • 2018-19 Undanúrslit
  • 2017-18 Átta liða úrslit
  • 2016-17 Íslandsmeistari
  • 2015-16 Undanúrslit
  • 2014-15 Undanúrslit
  • 2013-14 Undanúrslit
  • 2012-13 Ekki í úrslitakeppni
  • 2011-12 Ekki í úrslitakeppni

HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur Vals 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk skoruð í leik - 5. sæti (27,9)
  • Skotnýting - 5. sæti (61,0%)
  • Vítanýting - 4. sæti (82,6%)
  • Hraðaupphlaupsmörk - 4. sæti (67)
  • Stoðsendingar í leik - 8. sæti (10,5)
  • Tapaðir boltar í leik - 4. sæti (8,6)

Vörn og markvarsla Vals 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk fengin á sig í leik - 1. sæti (24,2)
  • Hlutfallsmarkvarsla - 1. sæti (35,5%)
  • Varin víti - 6. sæti (14)
  • Stolnir boltar - 4. sæti (86)
  • Varin skot í vörn - 8. sæti (45)
  • Lögleg stopp í leik - 4. sæti (20,9)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Martin Nagy frá Pick Szeged (Ungverjalandi)
  • Einar Baldvin Baldvinsson frá Selfossi
  • Tumi Steinn Rúnarsson frá Aftureldingu
  • Þorgeir Bjarki Davíðsson frá HK

Farnir:

  • Daníel Freyr Andrésson til GUIF (Svíþjóð)
  • Ásgeir Snær Vignisson til ÍBV

Líklegt byrjunarlið

  • Markvörður: Martin Nagy
  • Vinstra horn: Vignir Stefánsson
  • Vinstri skytta: Magnús Óli Magnússon
  • Miðja: Anton Rúnarsson
  • Hægri skytta: Agnar Smári Jónsson
  • Hægra horn: Finnur Ingi Stefánsson
  • Lína: Þorgils Jón Svölu Baldursson
Valsmenn bíða enn eftir því að Róbert Aron Hostert sýni sínar bestu hliðar í rauða búningnum.vísir/vilhelm

Verður að eiga gott tímabil

Róbert Aron Hostert hefur bæði orðið Íslandsmeistari með Fram og ÍBV og Valsmenn vonast til að hann leiki sama leik á Hlíðarenda. Frá því hann kom til Vals hefur hann verið mikið frá vegna meiðsla og ekki náð sömu hæðum og í Safamýrinni og Eyjum. En enginn velkist í vafa um hæfileikana og getuna og vonandi fyrir Róbert og Valsmenn heldur skrokkurinn.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Theodór Ingi Pálmason fer yfir möguleika Vals í Olís-deild karla í vetur.

Klippa: Valur 2. sæti
Sem fyrr er Adam Haukur Baumruk í lykilhlutverki hjá Haukum.vísir/bára

Haukar í 1. sæti: Kominn tími á titil

Haukar hafa ekki orðið Íslandsmeistarar síðan 2016 sem þykir löng þurrkatíð á Ásvöllum. Miðað við félagaskipti sumarsins ætla Haukar að bæta úr því og árangurinn á undirbúningstímabilinu gefur góð fyrirheit. Haukar unnu bæði Ragnars- og Hafnarfjarðarmótið og litu mjög vel út.

Á síðasta tímabili voru Haukar besta lið landsins fyrir áramót. Eftir EM-hléið gáfu þeir hins vegar eftir og voru í 4. sæti þegar tímabilið var blásið af. Í sumar steig Gunnar Magnússon frá borði og Aron Kristjánsson tók við Haukum í þriðja sinn.

Auk Arons eru Haukar búnir að fá þrjá leikmenn úr atvinnumennsku: Þráin Orra Jónsson, Geir Guðmundsson og sjálfan Björgvin Pál Gústavsson. Markvarslan var mjög góð hjá Haukum í fyrra en verður væntanlega enn betri í ár. Geir leysir stöðu hægri skyttu sem hefur verið til vandræða hjá Haukum í mörg ár. Þráinn Orri fyllir svo skarð Vignis Svavarssonar sem er hættur líkt og Ásgeir Örn Hallgrímsson.

Vörn og markvarsla voru í toppmálum hjá Haukum á síðasta tímabili en þeir geta bætt sig á sóknarhelmningnum, m.a. með því að nýta færin sín betur og fækka töpuðum boltum.

Haukar eru þéttir og flottir og að okkar mati líklegastir til að verða deildarmeistarar. Úrslitakeppnin er svo önnur skepna.

Hversu langt síðan að Haukaliðið ...

  • ... varð Íslandsmeistari: 4 ár (2016)
  • ... varð deildarmeistari: 1 ár (2019)
  • ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 1 ár (2019)
  • ... varð bikarmeistari: 6 ár (2014)
  • ... komst í bikarúrslit: 6 ár (2014)
  • ... komst ekki í úrslitakeppni: 9 ár (2011)
  • ... komst í undanúrslit: 1 ár (2019)
  • ... komst í lokaúrslit: 1 ár (2019)
  • ... féll úr deildinni: 33 ár (1987)
  • ... kom upp í deildina: 30 ár (1990)

Gengi Haukar í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 4. sæti í deildinni
  • 2018-19 Deildarmeistari
  • 2017-18 5. sæti í deildinni
  • 2016-17 3. sæti í deildinni
  • 2015-16 Deildarmeistari
  • 2014-15 5. sæti í deildinni
  • 2013-14 Deildarmeistari
  • 2012-13 Deildarmeistari
  • 2011-12 Deildarmeistari

Gengi Haukar í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
  • 2018-19 2. sæti
  • 2017-18 Undanúrslit
  • 2016-17 Átta liða úrslit
  • 2015-16 Íslandsmeistari
  • 2014-15 Íslandsmeistari
  • 2013-14 2. sæti
  • 2012-13 2. sæti
  • 2011-12 Undanúrslit
View this post on Instagram

Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka Aron Kristjánsson tekur við Haukaliðinu í vor Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Aron Kristjánsson um þjálfun karlaliðs Hauka að loknu yfirstandandi tímabili. Aron tekur við liðinu af Gunnari Magnússyni sem er að ljúka sínu 5 tímabili með Haukaliðið. Aron þjálfaði Hauka síðast fyrir 7 árum og hefur víða komið við síðan þá. Frá þeim tíma hefur hann þjálfað Íslenska landsliðið, KIF Kolding Kaupmannahöfn og Álaborg í Danmörku. Í dag þjálfar hann landslið Bahrain. Við Haukamenn eru gríðarlega ánægðir með að hafa náð samkomulagi við Aron um að þjálfa Haukaliðið og þar með tryggja okkur afar færan þjálfara til að halda okkur áfram í fremstu röð. Hann mun einnig stýra þeirri uppbyggingu sem við erum í á okkur efnilegu íþróttamönnum. Sagði Þorgeir Haraldsson, formaður hkd. Hauka við ráðningu Arons. Ég hlakka mikið til að takast á við komandi verkefni með Haukum. Það verður gaman að þjálfa liðið aftur og taka þátt í frekari uppbyggingu á handboltanum í Haukum og vinna með þeim efnivið sem er til staðar í félaginu. Sagði Aron Kristjánsson við undirritun samningsins í kvöld. ÁFRAM HAUKAR #haukarfélagiðmitt #handbolti #olisdeildin #seinnibylgjan

A post shared by Haukar Topphandbolti (@haukar_handbolti) on

HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur Hauka 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk skoruð í leik - 6. sæti (27,4)
  • Skotnýting - 7. sæti (58,3%)
  • Vítanýting - 10. sæti (72,4%)
  • Hraðaupphlaupsmörk - 5. sæti (62)
  • Stoðsendingar í leik - 2. sæti (12,5)
  • Tapaðir boltar í leik - 8. sæti (10,9)

Vörn og markvarsla Hauka 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk fengin á sig í leik - 3. sæti (26,2)
  • Hlutfallsmarkvarsla - 2. sæti (35,1%)
  • Varin víti - 2. sæti (15)
  • Stolnir boltar - 12. sæti (52)
  • Varin skot í vörn - 4. sæti (47)
  • Lögleg stopp í leik - 10. sæti (16,6)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Björgvin Páll Gústavsson frá Skjern (Danmörku)
  • Þráinn Orri Jónsson frá Bjerringbro-Silkeborg (Danmörku)
  • Geir Guðmundsson frá Cesson-Rennes (Frakklandi)
  • Stefán Huldar Stefánsson frá HK

Farnir:

  • Ásgeir Örn Hallgrímsson hættur
  • Vignir Svavarsson hættur
  • Halldór Ingi Jónasson til Aftureldingar (lán)
  • Stefán Huldar Stefánsson til Gróttu (lán)
  • Grétar Ari Guðjónsson til Nice (Frakklandi)
  • Gunnar Dal Hlynsson til Gróttu (lán)
  • Hjörtur Ingi Halldórsson til HK
  • Jason Guðnason hættur
  • Einar Pétur Pétursson til HK

Líklegt byrjunarlið

  • Markvörður: Björgvin Páll Gústavsson
  • Vinstra horn: Orri Freyr Þorkelsson
  • Vinstri skytta: Adam Haukur Baumruk
  • Miðja: Tjörvi Þorgeirsson
  • Hægri skytta: Geir Guðmundsson
  • Hægra horn: Brynjólfur Snær Brynjólfsson
  • Lína: Heimir Óli Heimisson
Gerir Björgvin Páll Gústavsson gæfumuninn fyrir Hauka?vísir/vilhelm

Verður að eiga gott tímabil

Eftir tvö ár hjá Skjern er Björgvin Páll Gústavsson kominn aftur, og væntanlega endanlega, heim. Hann var besti markvörður Olís-deildarinnar síðast þegar hann lék með Haukum (2017-18) og ef allt er eðlilegt verður hann það í vetur. Það var ekkert undan markvörslunni hjá Haukum að kvarta á síðasta tímabili en hún verður ennþá betri með tilkomu bakaradrengsins úr Kópavogi.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Rúnar Sigtryggsson fer yfir möguleika Hauka í Olís-deild karla í vetur.

Klippa: Haukar 1. sæti

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×