Handbolti

Spáin fyrir Olís-deild karla 2020-21: Slagurinn um síðasta sætið í úr­slita­keppninni (8.-9. sæti)

Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
spa2

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með þremur leikjum fimmtudaginn 10. september.

Í gær skoðuðum við þrjú neðstu liðin í spá okkar en núna er komið að liðunum sem við teljum að muni berjast um 8. sæti deildarinnar, sem er jafnframt síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni.

Að okkar mati berjast Fram og KA um hið dýrmæta 8. sæti. Á síðasta tímabili endaði Fram í 9. sæti deildarinnar en KA í því tíunda.

KA-menn hafa fengið til sín stór nöfn í sumar og Frammarar hafa sömuleiðis bætt nokkrum leikmönnum í hópinn sinn. Fram hefur m.a. sótt á færeysk mið sem KA hefur gert með góðum árangri.

KA fékk Mosfellinginn Árna Braga Eyjólfsson frá KIF Kolding í Danmörku.mynd/KA

KA í 9. sæti: Stór nöfn komin en er það nóg?

Fyrsta tímabil KA í efstu deild í langan tíma (2018-19) var ágætt og liðið var ekki langt frá því að komast í úrslitakeppnina. En í fyrra tóku KA-menn skref aftur á bak og voru í 10. sæti með ellefu stig þegar tímabilið var blásið af vegna kórónuveirufaraldursins. Aðeins fimm þeirra komu á heimavelli sem þarf að skila meiru í vetur.

Eftir tímabilið hætti Stefán Árnason og Jónatan Magnússon tók alfarið við liðinu. Hann hafði áður náð góðum árangri með kvennalið KA/Þórs og er auðvitað kunn KA-hetja.

KA hnyklaði vöðvana með því að ná í Árna Braga Eyjólfsson og Ólaf Gústafsson frá KIF Kolding í Danmörku. Þeir styrkja liðið en stóra EF-ið er hversu mikið Ólafur verður inni á vellinum. Ef líkaminn heldur styrkir hann KA gríðarlega mikið, bæði í vörn og sókn, og kemur með hæð í frekar lágvaxið lið. Árni Bragi er svo þekkt stærð og frábær hornamaður. Þá er Ragnar Snær Njálsson kominn aftur til KA og Jóhann Geir Sævarsson kom frá Þór.

KA var með næstslökustu markvörsluna í Olís-deildinni á síðasta tímabili og færeyski landsliðsmarkvörðurinn Nicholas Satchwell á að bæta úr því. Besti leikmaður KA undanfarin ár, Dagur Gautason, fór til Stjörnunnar og skilur eftir sig stórt skarð. Línumannsstaðan hefur verið veik síðan liðið kom upp í Olís-deildina og KA-menn hefðu þurft að styrkja sig þar.

Ef Ólafur helst heill, Satchwell reynist vel og KA nær í fleiri stig á heimavelli á liðið hæglega að geta komist í úrslitakeppnina.

Hversu langt síðan að KA ...

  • ... varð Íslandsmeistari: 18 ár (2002)
  • ... varð deildarmeistari: 19 ár (2001)
  • ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 19 ár (2001)
  • ... varð bikarmeistari: 16 ár (2004)
  • ... komst í bikarúrslit: 16 ár (2004)
  • ... komst í úrslitakeppni: 15 ár (2005)
  • ... komst í undanúrslit: 16 ár (2004)
  • ... komst í lokaúrslit: 18 ár (2002)
  • ... féll úr deildinni: 36 ár (1984) (Lék undir merkjum Akureyrar frá 2006-2017)
  • ... kom upp í deildina: 2 ár (2018)

Gengi KA í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil

  • 2019-20 10. sæti í deildinni
  • 2018-19 9. sæti í deildinni
  • 2017-18 B-deild (2. sæti)
  • 2016-17 Hluti af Akureyrarliðinu (10. sæti)
  • 2015-16 Hluti af Akureyrarliðinu (8. sæti)
  • 2014-15 Hluti af Akureyrarliðinu (6. sæti)
  • 2013-14 Hluti af Akureyrarliðinu (6. sæti)
  • 2012-13 Hluti af Akureyrarliðinu (6. sæti)
  • 2011-12 Hluti af Akureyrarliðinu (3. sæti)

Gengi KA í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil

  • 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
  • 2018-19 Ekki í úrslitakeppni
  • 2017-18 B-deild
  • 2016-17 Hluti af Akureyrarliðinu (Ekki í úrslitakeppni)
  • 2015-16 Hluti af Akureyrarliðinu (8 liða úrslit)
  • 2014-15 Hluti af Akureyrarliðinu (8 liða úrslit)
  • 2013-14 Hluti af Akureyrarliðinu (Ekki í úrslitakeppni)
  • 2012-13 Hluti af Akureyrarliðinu (Ekki í úrslitakeppni)
  • 2011-12 Hluti af Akureyrarliðinu (Undanúrslit)

KA vinnur 27-26 sigur á ÍR og tryggir sér þar með sigur á Opna Norðlenska mótinu rétt eins og stelpurnar í KA/Þór. Stutt í að alvaran hefjist og afar jákvætt að fá lið norður í æfingaleiki.

Posted by Knattspyrnufélag Akureyrar on Laugardagur, 29. ágúst 2020

HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur KA 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk skoruð í leik - 9. sæti (26,2)
  • Skotnýting - 9. sæti (56,8%)
  • Vítanýting - 11. sæti (69,4%)
  • Hraðaupphlaupsmörk - 2. sæti (72)
  • Stoðsendingar í leik - 9. sæti (10,3)
  • Tapaðir boltar í leik - 11. sæti (11,6)

Vörn og markvarsla KA 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk fengin á sig í leik - 9. sæti (29,1)
  • Hlutfallsmarkvarsla - 11. sæti (27,4%)
  • Varin víti - 2. sæti (15)
  • Stolnir boltar - 3. sæti (90)
  • Varin skot í vörn - 12. sæti (17)
  • Lögleg stopp í leik - 1. sæti (26,1)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Nicholas Satchwell frá Færeyjum
  • Ólafur Gústafsson frá KIF Kolding (Danmörku)
  • Árni Bragi Eyjólfsson frá KIF Kolding (Danmörku)
  • Jóhann Geir Sævarsson frá Þór
  • Ragnar Snær Njálsson frá Stjörnunni

Farnir:

  • Dagur Gautason til Stjörnunnar
  • Daníel Matthíasson hættur
  • Jovan Kukobat til Þórs
  • Daníel Örn Griffin til Gróttu

Líklegt byrjunarlið

  • Markvörður: Nicholas Satchwell
  • Vinsta horn: Jóhann Geir Sævarsson
  • Vinstri skytta: Ólafur Gústafsson
  • Miðja: Patrekur Stefánsson
  • Hægri skytta: Áki Egilsnes
  • Hægra horn: Árni Bragi Eyjólfsson
  • Lína: Einar Birgir Stefánsson
Áki Egilsnes hefur reynst KA afar vel undanfarin ár.vísir/bára

Verður að eiga gott tímabil

Færeyski landsliðsmaðurinn Áki Egilsnes er að hefja sitt fjórða tímabil með KA. Síðan hann kom hefur hann verið potturinn og pannan í sóknarleik KA-manna. Áki missti af nær helmingi síðasta tímabils og það stórsá á KA-liðinu þegar hann var ekki með. Færeyingurinn er lúmsk skytta, með góða yfirsýn og öruggur á vítalínunni.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Rúnar Sigtryggsson fer yfir möguleika KA í Olís-deild karla í vetur.

Klippa: KA 9. sæti
Matthías Daðason og félagar í Fram freista þess að komast í úrslitakeppnina.vísir/bára

Fram í 8. sæti: Kemur gamla Framhetjan liðinu aftur á siglingu eftir umrót síðasta tímabils?

Á ýmsu gekk hjá Fram á síðasta tímabili. Guðmundi Helga Pálssyni var sagt upp í lok nóvember og við tók Halldór Sigfússon. Hann rétti Framskútuna við og liðið var í 9. sæti, aðeins einu stigi frá sæti í úrslitakeppninni, þegar tímabilið var blásið af.

Eftir tímabilið hætti Halldór og fór á Selfoss. Við starfi hans í Safamýrinni tók Sebastian Alexandersson sem stóð á milli stanganna hjá Fram um aldamótin og varð bikarmeistari með liðinu. Sebastian er þrautreyndur þjálfari og er nú mættur í efstu deild karla eftir nokkurt hlé.

Fram hefur gert áhugaverða hluti á félagaskiptamarkaðnum, fengið tvo Færeyinga og tvo góða leikstjórnendur í Andra Má Rúnarssyni og Breka Dagssyni. Sá síðarnefndi hefur verið allt í öllu hjá Fjölni undanfarin ár og það verður gaman að sjá hvernig hann spjarar sig í betra liði.

Fram spilaði góða vörn á síðasta tímabili og Lárus Helgi Ólafsson var stórfínn í markinu. En ekkert lið skoraði færri mörk en Fram og sóknarleikurinn var að mestu leyti afleitur. Sebastian þarf að vinna í honum og þá ættu Andri Már og Breki að hjálpa til við að fjölga mörkunum og létta undir með Þorgrími Smára Ólafssyni.

Frammarar eru með fínasta lið sem á hæglega að geta komist í úrslitakeppnina.

Hversu langt síðan að Fram ...

  • ... varð Íslandsmeistari: 7 ár (2013)
  • ... varð deildarmeistari: Aldrei
  • ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 7 ár (2013)
  • ... varð bikarmeistari: 20 ár (2000)
  • ... komst í bikarúrslit: 2 ár (2018)
  • ... komst í úrslitakeppni: 3 ár (2017)
  • ... komst í undanúrslit: 3 ár (2017)
  • ... komst í lokaúrslit: 7 ár (2013)
  • ... féll úr deildinni: 27 ár (1993)
  • ... kom upp í deildina: 24 ár (1996)

Gengi Fram í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 9. sæti í deildinni
  • 2018-19 10. sæti í deildinni
  • 2017-18 10. sæti í deildinni
  • 2016-17 6. sæti í deildinni
  • 2015-16 7. sæti í deildinni
  • 2014-15 8. sæti í deildinni
  • 2013-14 5. sæti í deildinni
  • 2012-13 3. sæti í deildinni
  • 2011-12 5. sæti í deildinni

Gengi Fram í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil

  • 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
  • 2018-19 Ekki í úrslitakeppni
  • 2017-18 Ekki í úrslitakeppni
  • 2016-17 Undanúrslit
  • 2015-16 Átta liða úrslit
  • 2014-15 Átta liða úrslit
  • 2013-14 Ekki í úrslitakeppni
  • 2012-13 Íslandsmeistari
  • 2011-12 Ekki í úrslitakeppni
View this post on Instagram

Sebastian Alexandersson ráðinn þjálfari meistaraflokks karla. Það er handknattleiksdeild Fram mikil ánægja að tilkynna um ráðningu Sebastians í starf þjálfara meistarflokks karla. Sebastian skrifaði undir 3 ára samning við félagið í dag. Sebastian var leikmaður Fram hér á árum áður. Hann gekk til liðs við félagið árið 1998 frá Aftureldingu og lék með félaginu til ársins 2003 og var meðal annars í liðinu sem tryggði sér bikarmeistaratitilinn árið 2000. Sebastian gekk aftur til liðs við fram árið 2011 og lék með liðinu leiktíðina 2011-2012 þá 42 ára að aldri. Sebastian starfaði lengi sem þjálfari á Selfossi og á stóran þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem þar hefur verið í gangi síðastliðin ár. Sebastian hefur þjálfað kvennalið Stjörnunnar síðastliðin 2 ár með eftirtektarverðum árangri. Liðið er nú í 3.sæti deildarinnar þegar hlé hefur verið gert á deildarkeppninni. Við bjóðum Sebastian velkominn í Fram og hlökkum til samstarfsins. Fyrir hönd stjórnar handknattleiksdeildar FRAM Bjarni Kristinn Eysteinsson Formaður

A post shared by Fram handbolti (@framhandbolti) on

HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur Fram 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk skoruð í leik - 12. sæti (24,0)
  • Skotnýting - 10. sæti (56,5%)
  • Vítanýting - 6. sæti (76,8%)
  • Hraðaupphlaupsmörk - 10. sæti (56)
  • Stoðsendingar í leik - 11. sæti (9,2)
  • Tapaðir boltar í leik - 9. sæti (11,3)

Vörn og markvarsla Fram 2019/20 í tölum HBStatz

  • Mörk fengin á sig í leik - 2. sæti (25,3)
  • Hlutfallsmarkvarsla - 5. sæti (32,4%)
  • Varin víti - 7. sæti (13)
  • Stolnir boltar - 11. sæti (69)
  • Varin skot í vörn - 1. sæti (68)
  • Lögleg stopp í leik - 10. sæti (16,6)

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Andri Már Rúnarsson frá Stjörnunni
  • Elías Bóasson frá ÍR
  • Róbert Örn Karlsson frá Víkingi
  • Þorvaldur Tryggvason frá Fjölni
  • Rógvi Dal Christiansen frá Kyndil (Færeyjum)
  • Vilhelm Poulsen frá H71 Hoyvik (Færeyjum)
  • Breki Dagsson frá Fjölni

Farnir:

  • Andri Heimir Friðriksson til ÍR
  • Valdimar Sigurðsson til Kríu
  • Svavar Kári Grétarsson
  • Svanur Páll Vilhjálmsson til ÍBV
  • Lúðvík Thorberg Arnkelsson til Gróttu

Líklegt byrjunarlið

  • Markvörður: Lárus Helgi Ólafsson
  • Vinstra horn: Matthías Daðason
  • Vinstri skytta: Þorgrímur Smári Ólafsson
  • Miðja: Breki Dagsson
  • Hægri skytta: Aron Gauti Óskarsson
  • Hægra horn: Arnar Snær Magnússon
  • Lína: Rógvi Dal Christiansen
Þorgrímur Smári Ólafsson hefur farið víða á ferlinum en virðist vera búinn að koma sér vel fyrir hjá Fram.vísir/bára

Verður að eiga gott tímabil

Þorgrímur Smári Ólafsson var langbesti sóknarmaður Fram á síðasta tímabili og bar sóknarleikinn nánast á herðum sér. Hann skoraði flest mörk hjá Fram og gaf flestar stoðsendingar. Með tilkomu Breka og Andra Más ætti Þorgrímur að fá meiri hjálp og geta notið sín enn betur.

Sérfræðingur Seinni bylgjunnar segir ...

Rúnar Sigtryggsson fer yfir möguleika KA í Olís-deild karla í vetur.

Klippa: Fram 8. sæti

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×