Innlent

Bjóða verk­falls­hlé í tvo daga gegn skrif­legri stað­festingu á „Kast­ljós­stil­boðinu“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Vísir/Vilhelm

Stéttarfélagið Efling hefur boðist til að fresta verkfallsaðgerðum í tvo sólarhringa, á miðvikudag og fimmtudag, gegn því að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veiti skriflega staðfestingu á „Kastljósstilboðinu“ svokallaða. Þessu greinir Efling frá í tilkynningu og kveðst hafa sent erindi þess efnis til borgarstjóra, með afriti á ríkissáttasemjara.

Umrætt tilboð útlistaði borgarstjóri í viðtali í Kastljósi á Ríkisútvarpinu þann 19. febrúar síðastliðinn. Þar sagði hann tilboðið m.a. hljóða upp á um 110 þúsund króna grunnlaunahækkun fyrir ófaglærðan leikskólastarfsmann innan Eflingar. 

Sjá einnig: Segist „að sjálfsögðu“ standa við tilboð sitt

Ásakanir um gylliboð

Forsvarsmenn Eflingar hafa sakað Dag um að hafa reifað annað tilboð í sjónvarpssal en gert er við samningaborðið. Dagur hefur ítrekað hafnað ásökunum um innistæðulaus gylliboð og sagt að sjálfsögðu hafi verið um sama tilboð að ræða. Dagur gerði frekar grein fyrir tilboðinu á Facebook-síðu sinni í liðinni viku, líkt og sjá má hér að neðan:

„Tilboð borgarinnar myndi hækka meðal grunnlaun almennra starfsmanna á leikskólum úr 310 þús í 420 þús á mánuði. Ofan á þessar tölur koma álagsgreiðslur sem hafa verið greiddar á leikskólum og eiga að halda áfram og verða heildarlaun í lok samningstímans því 460 þús. á mánuði. Þetta er gott tilboð um mikla hækkun lægstu launa sem er hér með ítrekað. Fyrir ófaglærða deildastjóra á leikskóla úr röðum Eflingar myndu grunnlaun hækka í 520 þús. að meðaltali á mánuði. Með áðurnefndum álagsgreiðslum eru heildarlaun þessa hóps 572 þús á mánuði. Getur þetta verið skýrara?“ skrifaði Dagur.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.Vísir/Vilhelm

Fær frest til klukkan 16 í dag

Efling segir í yfirlýsingu sinni nú að heildstætt tilboð í þessa veru hafi ekki komið fram á samningafundum, „þrátt fyrir athugasemdir og óskir samninganefndar Eflingar.“ Með erindi Eflingar til borgarstjóra fylgi tillaga að skriflegu samkomulagi milli samningsaðila.

„Í því er fastbundið að grunnlaun Eflingarfélaga hækki á bilinu 100-110 þúsund á samningstímanum, mest hjá lægst launuðum og minnst hjá þeim hæst launuðu. Í samkomulaginu segir að með þessu hafi sátt náðst um grunnlaunahækkanir á samningstímanum og þá sé hægt að hefja vinnu við að ná saman um önnur atriði. Samkomulagið tekur eingöngu til grunnlauna en ekki annarra atriða, svo sem álaga, sérgreiðslna og uppbóta,“ segir í tilkynningu Eflingar.

Verkfalli yrði frestað í tvo sólarhringa, frá því klukkan 00:01 á miðvikudag til klukkan 23:59 á fimmtudag næstkomandi. Erindi Eflingar var sent borgarstjóra klukkan 11 í morgun og er honum gefinn frestur til svars til klukkan 16 í dag, 3. mars. Síðasti samningafundur í kjaradeilu Eflingar og Reykjavíkurborgar var á miðvikudag í síðustu viku.

Haft er eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar í tilkynningu að tilboðið myndi staðfesta það sem borgarstjóri hefur sjálfur lagt fram í umræðunni, „það er að segja að Eflingarfélögum á lægstu launum standi til boða 20 þúsund grunnlaunahækkun umfram Lífskjarasamninginn.“

Samkomulagið sem Efling sendi ásamt erindi sínu til borgarstjóra í morgun.Skjáskot

Tengdar fréttir

Efling veitir undanþágu fyrir velferðarsvið

Undanþágunefnd Eflingar hefðu að höfðu samráði við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra veitt undanþágu frá verkfallsaðgerðum á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar fram til loka dags á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×