Atvinnulíf

Kórónuveiran: 5 atriða aðgerðarplan fyrir stjórnendur

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jensína K. Böðvarsdóttir segir mikilvægt að fyrirtæki og stofnanir undirbúi sig vel með aðgerðarplani og reyni þannig að draga úr þeim áhrifum sem kórónufaraldurinn getur valdið.
Jensína K. Böðvarsdóttir segir mikilvægt að fyrirtæki og stofnanir undirbúi sig vel með aðgerðarplani og reyni þannig að draga úr þeim áhrifum sem kórónufaraldurinn getur valdið.
Hvort sem fyrirtæki eru stór eða smá, ættu allir vinnustaðir að vera komnir með viðbragðsáætlun fyrir starfsfólk og rekstur í kjölfar kórónuveirunnar. Mestu skiptir þar að vinna vel að undirbúningi því góður undirbúningur er líklegur til að geta lágmarkað þau áhrif sem faraldurinn getur mögulega haft.

Alþjóða fyrirtækið Valcon hefur gefið út leiðbeiningar fyrir stærri og smærri fyrirtæki að styðjast við. Við báðum Jensínu K. Böðvarsdóttir ráðgjafa hjá Valcon (e. Associate Partner)  að fara yfir þau atriði sem skipta hvað mestu máli.

Að sögn Jensínu geta stjórnendur stærri og smærri fyrirtækja fylgt eftir eftirfarandi 5 atriða aðgerðarplani. 

 

1. Fylgið eftir öllum ráðleggingum heilbrigðisyfirvalda.

Fyrst og fremst eiga öll fyrirtæki að fylgja opinberum ráðleggingum heilbrigðisyfirvalda. Heilsa fólks er forgangsverkefni allra, frá einstaklingum til fyrirtækja. Þá vill Jensína taka það sérstaklega fram að  blaðamannafundirnir sem boðaðir hafa verið af almannavarnardeild ríkislögreglustjóra hafa verið til fyrirmyndar.



2. Verið með skilgreinda viðbragðsáætlun.

Í þessu er mikilvægt að útbúa áætlun fyrir möguleg fjöldaforföll starfsmanna vegna sóttkvía eða veikinda. Taka þarf ákvörðun um hvaða búnað á að nota, til dæmis fyrir fjarfundi og hvernig starfsmenn geta haldið uppi virkum samtölum úr fjarvinnu.



3. Vaktið alla virðiskeðjuna, líka birgja.

Einn helsti veikleiki fyrirtækja er oft að finna hjá birgjum en ekki fyrirtækjunum sjálfum. Það er því ekki nóg að gera allar ráðstafanir innan fyrirtækjanna en haga innkaupum og viðskiptum með sama hætti og áður. Fara þarf yfir alla ferla hvað þetta viðkemur, þar með talið að fylgjast með hver  staða og þróun er hjá viðskiptavinum.



4. Áætlið hver þolmörk fyrirtækisins eru í fjárhag og rekstri.

Hér þarf fjármálasviðið að útbúa nokkrar sviðsmyndir miðað við möguleg og mismunandi alvarleg áhrif kórónufaraldursins á reksturinn. Þetta er gert til að hægt sé að grípa til ráðstafana snemma, til dæmis ef fyrirséð verður að upp geti komið vandi í sjóðstreymi.



5. Tilnefnið það starfsfólk sem er í viðbragðsteymi eða forystu viðbragðsáætlana.

Í stærri fyrirtækjum eru oft til viðbragðsáætlanir sem hægt er að virkja þegar eitthvað alvarlegt kemur upp, þar á meðal liggur hlutverkaskipan innan starfsmannahópa fyrir. Smærri fyrirtæki ættu að íhuga þetta líka þannig að starfsfólk sé upplýst um það fyrirfram hver innan fyrirtækisins muni bera ábyrgð á öryggis- og viðbragðsáætlunum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×