Mjög ung Katrín Tanja í áhrifamikilli auglýsingu með Tiu heimsmeistara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2020 08:30 Katrín Tanja Davíðsdóttir á fundi með No Bull þar sem hún fékk að leggja línurnar við hönnun sinnar vörulínu. Mynd/Instagram
Katrín Tanja Davíðsdóttir er þessa dagana að kynna nýja íþróttavörulínu No Bull í samstarfi við tvær vinkonur sínar úr hópi bestu CrossFit kvenna heims. No Bull Project er samstarfsverkefni No Bull með þremur af öflugustu CrossFit-konum heims en það eru Katrín Tanja, heimsmeistarinn Tia-Clair Toomey og hin bandaríska Brooke Wells. Hver þeirra þriggja fær sinn sérstaka stíl í þessari nýju framleiðslu en allar þrjár eru síðan settar í sölu á saman tíma. Verkefnið var unnið með þeim öllum frá byrjun. Sá hluti sem snýr að Katrínu Tönju er hannaður með Ísland í huga og er íþróttafatnaðurinn hennar gerólíkur fatnaðinum hjá Tiu-Clair Toomey og Brooke Wells. Sú leið sem var farin í auglýsingagerðinni fyrir þetta No Bull Project stelpnanna var að sækja gömul myndbönd af þeim öllum frá þeim tíma sem þær voru að leggja af stað á sínum ferli. Katrín Tanja fer áberandi lengst aftur og má finna mjög krúttleg myndbrot af henni reyna fyrir sér í þrautabraut og líklega að fá fyrstu marblettina sína á íþróttaferlinum. Myndbandið sem er áhrifamikið og kjörið til þess að veita íþróttakonum út um allan heim innblástur eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram The world is screaming: Look at me. Listen to me. Validate me. That s not me. I am sacrificing and putting in the work. Every single day. I am not an Instagram model. I am much more than an influencer. I am an athlete. That is who I ve always been. #IAMNOBULL A post shared by NOBULL (@nobullproject) on Aug 13, 2020 at 5:00pm PDT Textinn í auglýsingunni má einnig finna inn á Instagram síðu No Bull Project en hann snýr að baráttu íþróttakvenna að fá fulla viðurkenningu á sér og sínum afrekum. Þær lesa sjálfar þessi orð í auglýsingunni. „Heimurinn er að öskra: Horfið á mig. Hlustið á mig. Viðurkennið mig,“ segir í textanum í myndbandinu. „Þetta er ekki ég. Ég er að fórna mér og skila af mér vinunni. Alla daga,“ segir enn fremur og svo er haldið áfram: „Ég er ekki Instagram fyrirsæta. Ég er meira en áhrifavaldur. Ég er íþróttamaður. Ég hef alltaf verið það,“ segja þær að lokum á myndbandinu. Þetta er verkefni þeirra þriggja er meira en árs gamalt en það byrjaði allt þegar þær Katrín Tanja Davíðsdóttir, Tia-Clair Toomey og Brooke Wells hittust í Boston og ræddu framtíðina með starfsfólki No Bull. Þær fengu hver og ein sinn tíma með markaðsdeildinni og höfðu því allar mjög mikil áhrif á þá stefnu sem þeirra vörulína tók. Það var markmiðið að segja þeirra sögu í gegnum vörurnar. Hluti framleiðsluteymisins ferðaðist síðan til heimæbæja þeirra þriggja, til Tulsa í Oklahoma-fylki í Bandaríkjunum, til Queensland í Ástralíu og svo auðvitað til Reykjavíkur á Íslandi. Þar ræddu þau við fjölskyldu þeirra og komust að því hvað það væri sem rekur þá áfram í baráttunni fyrir því að verða besta útkoman af sjálfri sér. Þetta efni var líka sett saman í stuttmyndina „Who I’ve Always Been“ sem hefur vakið athygli og má sjá hér fyrir neðan. watch on YouTube
CrossFit Mest lesið Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Fleiri fréttir Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Norris með aðra höndina á titlinum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Íslendingarnir atkvæðamiklir í kvöld Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Sandra með tíu í þrettán marka sigri ÍBV Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Engin skoraði meira en Elín Klara Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Með 32 mörk í síðustu þremur leikjum „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Snævar setti heimsmet Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjá meira