Erlent

Eyddu upptökum úr klefa Epstein

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bandaríski auðkýfingurinn Jeffrey Epstein er talinn hafa framið sjálfsvíg í fangaklefa sínum í ágúst síðastliðnum.
Bandaríski auðkýfingurinn Jeffrey Epstein er talinn hafa framið sjálfsvíg í fangaklefa sínum í ágúst síðastliðnum. AP

Upptökum úr öryggismyndavélum í fangaklefa kynferðisafbrotamannsins Jeffrey Epstein var eytt fyrir mistök, að sögn saksóknara. Upptökurnar eru taldar hafa sýnt fyrstu sjálfsvígstilraun Epstein, en stjórnendur fangelsins eru sagðir hafa óvart vistað myndbandsupptökur úr öðrum fangaklefa.

Epstein, sem hafði verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn ólögráða stúlkum, reyndi að hengja sig í fangaklefa sínum í júlí síðastliðnum þegar hann beið þess að vera leiddur fyrir dómara. Hann hafði verið ákærður fyrir umfangsmikið mansal, kynlífsþrælkun og misnotkun á tugum stúlkna, sem hann þvertók fyrir. Epstein fannst hálfmeðvitundarlaus í fangaklefa sínum eftir sjálfsvígstilraunina og var hann fluttur í annan fangaklefa þar sem hann var undir sjálfsvígsvakt allan sólarhringinn.

Þrátt fyrir að hafa sætt eftirliti lést Epstein í fangaklefa sínum þann 10. ágúst, þegar hann er sagður hafa hengt sig. Réttarmeinafræðingar hafa staðfest þá tilgátu, þó margir efist um niðurstöðu þeirra. Tveir fangaverðir eru sakaðir um að hafa vanrækt að líta með reglubundnum hætti eftir Epstein og hafa þeir verið ákærðir fyrir að hafa falsað gögn til að sýna fram á annað.

Stjórnendur fangelsins Metropolitan Correctional Center hafa sætt harðri gagnrýni fyrir meðhöndlun sína á máli Jeffrey Epstein.epa/JUSTIN LANE

Umræddar upptökur, sem finnast hvergi, lúta að fyrri sjálfsvígstilrauninni. Saksóknarar í máli Epstein segja að þær upptökur sem til eru frá kvöldinu örlagaríka sýni hins vegar fangaklefa þar sem engan Epstein var að finna. Upptökur úr fangaklefum umrædds fangelsins eru aðeins geymdar í rúman mánuð, nema farið sé fram á annað, og hafa upptökur úr klefa Epstein því ekki verið aðgengilegar frá því í ágúst.

Lögmaður annars fanga, sem deildi klefa með Epstein í júlí, fór fram á að fá upptöku úr klefanum afhenta. Hann segir skjólstæðing sinn, fyrrverandi lögreglumanninn Nicholas Tartaglione, hafa reynt að hjálpa Epstein úr snörunni og þannig bjargað lífi hans. Lögmaðurinn telur það eiga að koma til refsiminnkunnar fyrir sinn mann, en Tartiglione þessi er sakaður um að hafa orðið fjórum að bana.

Tæknin og samskiptin hafi klikkað

Málið þykir hið neyðarlegasta fyrir stjórnendur fangelsins, Metropolitan Correctional Center, sem sætt hafa gagnrýni allt frá því að Epstein var fyrst vistaður þar síðasta sumar. Þeir segja að vandræðin með umræddar upptökur megi rekja til fyrrnefndra tæknivandræða, vitlaus upptaka var vistuð, auk þess sem samskiptaörðugleikar hafi valdið því að enginn yfirfór upptökurnar þegar þeirra naut enn við.

Talið var að starfsmaður fangelsins væri þegar búinn að kanna hvort eitthvað eftirtektarvert fyndist á umræddum upptökum, sem myndi réttlæta það að vista þær lengur, en annað hafi komið á daginn. Engar varaupptökur var að vinna, því þeim hafi einnig verið eytt í ágúst síðastliðnum.

Þessar vendingar eru til þess eins fallnar að gefa samsæriskenningum um andlát Epstein byr undir báða vængi. Upp hafa sprottið kenningar um að Epstein hafi í raun og veru verið myrtur til þess að hylma yfir með vinum hans; valdamiklum mönnum á borð við Andrés Bretaprins, Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseta og núverandi forseta, Donald Trump.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×