„Ætlast til að Blikarnir stígi upp og sýni að þeir séu meistarakandídatar“ Arnar Geir Halldórsson skrifar 19. júlí 2020 17:30 Máni Pétursson Vísir/Skjáskot
Breiðablik fær Val í heimsókn í öðrum af stórleikjum dagsins í Pepsi Max deild karla í fótbolta en einu stigi munar á liðunum í 3. og 5.sæti deildarinnar. „Ég er spenntur fyrir því. Menn verða að hafa þolinmæði fyrir því sem Blikar eru að gera. Þegar verið að breyta leikstíl og færslum er eðlilegt að það taki tíma. Ég er hrifinn af því sem Blikar eru að gera og ég held með þeim,“ segir Máni Pétursson, einn af sérfræðingum Pepsi Max markanna í sumar. Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við stjórnartaumunum hjá Breiðabliki í vetur og eru miklar væntingar bundnar við ráðninguna. Máni er sannfærður um að framtíðin sé björt í Smáranum. „Það er frábært að vera að keyra á hugmyndafræði og vera með plan. Ég held að þetta sé rétt leið upp á framtíðina. Hvort það muni kosta þá eitthvað á þessari leiktíð verður bara að koma í ljós.“ Blikar töpuðu sínum fyrsta leik í síðustu umferð þegar þeir lágu í valnum að Meistaravöllum þar sem KR vann sannfærandi 3-1 sigur. „Mér fannst þeir bogna í síðasta leik. Það hefur ekkert með leikkerfi að gera heldur með karakterana í liðinu. Það eru frábærir leikmenn í Blikaliðinu og frábærir karakterar og ég ætlast til þess að þeir stígi upp og sýni að þeir séu verðugir meistarakandídatar,“ segir Máni. Leikur Breiðabliks og Vals hefst klukkan 20 og hefst útsending frá Kópavogsvelli klukkan 19:30 á Stöð 2 Sport. Klippa: Máni um Breiðablik
Íslenski boltinn Breiðablik Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira