Makamál

Hláturinn lengir sambandið

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Þriðjungur lesenda Vísis segist ekki hlæja nóg eða nánast aldrei með makanum sínum í könnun Makmála. 
Þriðjungur lesenda Vísis segist ekki hlæja nóg eða nánast aldrei með makanum sínum í könnun Makmála.  Getty

„Hláturinn lengir lífið og lyftir geði tregu“, hefur Ómar nokkur Ragnarson sungið fyrir börn og menn í gegnum árin. All margar rannsóknir hafa sýnt fram á góð áhrif hláturs bæði á andlega og líkamlega heilsu fólks. 

Hlátur er því talinn vera hin besta heilsubót og sagður hafa góð áhrif hvort sem hann komi náttúrulega eða sé þvingaður fram eins og unnið er með í  hláturjóga.  

En hversu mikilvægt er það að hlæja með makanum sínum? 

Við rákumst á rannsókn þar sem rannsakað er áhrif hláturs á sambönd. Þar kemur fram að sambönd, þar sem fólk hlær mikið saman, eru sterkari og líklegri til að endast lengur. 

Höfundur rannsóknarinnar, Laura Kurtz, hafði þetta að segja;

Þetta þýðir að við getum sagt það með vissu að það er eitthvað sérstakt sem gerist milli fólks þegar það hlær saman. Það er ekki nóg að hlæja í návist makans heldur er það hláturinn sem þið deilið saman sem skiptir mestu máli.

Það er því kannski óhætt að segja að hláturinn lengi ekki bara lífið, heldur samlífið líka.

Í Spurningu síðustu viku spurðum við lesendur Vísis hvort þeim fyndist makinn sinn fyndinn. Þriðjungur segist ekki hlæja nóg eða nánast aldrei með makanum en tæplega 70% segist hlæja mikið með makanum sínum. 

Alls tóku rúmlega tvöþúsund manns í könnuninni og hægt er  að sjá nákvæmari niðurstöður hér fyrir neðan:

Finnst þér makinn þinn fyndinn?

Já, við hlæjum mikið saman - 69%

Já, við hlæjum saman en ekki nóg -21% 

Nei, við hlæjum nánast aldrei saman - 8%

Húmor skiptir ekki máli í sambandi - 2%

Makamál mættu í Brennsluna á FM957 á föstudagsmorgun og ræddu niðurstöðurnar. Einnig var kynnt til leiks ný Spurning vikunnar. Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan. 

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×