Makamál

Einhleypurnar: Hverjir eru á lausu og hverjir á föstu?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Sumir eru húrrandi einhleypir og aðrið ástfangnir upp fyrir haus. 
Sumir eru húrrandi einhleypir og aðrið ástfangnir upp fyrir haus.  Visir

Síðan Makamál hófu göngu sína á Vísi fyrir rúmu ári síðan eru Einhleypurnar nú yfir tuttugu talsins. En hvernig er staðan á þeim í dag? 

Hverjir eru gengnir út og hverjir eru á lausu? 

Brynja Jónbjarnadóttir - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á FÖSTU

Brynja var fyrsta Einhleypan á Vísi og greindum við frá því þegar hún fann ástina stuttu eftir að viðtalið birtist.  Óskum við Brynju innilega til hamingju með ástina og lífið. 

Sigurður Sólmundarson - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á FÖSTU

Gleðigjafinn síkáti, Sigurður Sólmundarson, eða Siggi Sól eins og hann er yfirleitt kallaður, fann ástina á síðasta ári. Makamál greindu frá fyrstu kynnum hans við ástina sína í skemmtilegri grein sem hægt er að sjá hér. 

Þrúður Guðmundssdóttir - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: IT'S COMPLICATED

„Það sem breyttist þegar viðtalið birtist var að ég þurfti að setja Instagrammið mitt á private vegna aðsókna frá mönnum yfir fimmtugu“.

Haukur Pálsson - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á LAUSU

„Já, ég er enn einhleypur, þrátt fyrir aukna athygli í kjölfar Einhleypudálksins. Einhleypnin varð aðeins leiðinlegri en venjulega í vetur vegna ofviðra og svo veirufaraldurs þannig að ég er farinn að hugsa um að fá mér hund“.

Dóra Júlía - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á FÖSTU

Dóra Júlía, plötusnúður og ofurskvísa, er nýlega gengin út. Það er óhætt að segja að það skíni af henni hamingjan og óskum við henni innilega til hamingju með ástina. Makamál greindu frá nýja sambandinu fyrir stuttu. 

Eyjólfur Eyvindarson - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á FÖSTU

Eyjólfur Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A, er nú búinn að finna ástina í örmum Ásdísar Þulu. Makamál fjölluðu um ansi frumlega afmælisgjöf sem Sesar gaf kærustunni á dögunum.  Makamál óska þessu skemmtilega pari innilega til hamingju með hvort annað. 

Ása Bríet - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: IT'S COMPLICATED

„Aðskilin ást, út af COVID-19“. 

Sveinn Rúnar Einarsson - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á FÖSTU

„Ég er að hitta gæja núna, það er nýlegt og funny“.

Þórunn Antonía - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á LAUSU

„Ég er náttúrulega bara húrrandi single og fabulous“.

Oddur Atlason - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á LAUSU

Oddur var frekar dulur þegar Makamál höfðu samband til að leita eftir kommenti. Loksins sagði hann: „Greinin gerði samt loads“. 

Antoine Hrannar Fons - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á LAUSU

„Elska að vera single! Ég er alltaf til staðar þegar ég þarf á mér að halda“.

Ragna Sigurðardóttir - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á LAUSU

„Í hreinskilni sagt líst mér ekkert á blikuna lengur. Bíð enn eftir að vera frelsuð úr turni Einhleypunnar. Og er að verða uppiskroppa með prinsa!“

Arnar Eyfells - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á FÖSTU

Arnar Eyfells fann ástin í örmum leiklistarnemans og fyrirsætunnar Brynju Kúlu. Makamál greindu frá sambandi þeirra fyrir stuttu og óskum við turtildúfunum innilega til hamingju með ástina og ævintýrin. 

Kristín Ruth - Viðtal

SAMBANDSSTAÐA: Á FÖSTU

Kristín Ruth er gengin út og heitir sá heppni Vilhelm Einarsson. Við óskum þessu nýbakaða pari til hamingju með ástina. 

Makamál taka á móti ábendingum um skemmtilegar Einhleypur í netfanginu makamal@syn.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×