Makamál

Blint stefnumót Skúla og Birtu endaði með bíómyndakossi

Ása Ninna Pétursdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Það var rómantík í fyrsta þætti stefnumótaþáttanna Fyrsta blikið á Stöð 2. Í kvöld klukkan 18:55 mun þáttur tvö fara í loftið. 
Það var rómantík í fyrsta þætti stefnumótaþáttanna Fyrsta blikið á Stöð 2. Í kvöld klukkan 18:55 mun þáttur tvö fara í loftið.  Stöð 2

Þau elska bæði Harry Potter, spila sömu tölvuleiki, segjast bæði vera Nexus-nördar og horfa á sömu kvikmyndirnar. Birta Rós og Skúli voru eitt tveggja para í stefnumótaþættinum Fyrsta blikið síðasta föstudagskvöld.

Það var klárlega tikkað í ansi mörg box á blindu stefnumóti Birtu Rósar og Skúla sem virtust eiga margt sameiginlegt. 

Birta Rós geislaði á blindu stefnumóti í stefnumótaþættinum Fyrsta blikið síðasta föstudagskvöld. Stöð 2

Birta Rós er 26 ára gömul og starfar í dag sem þjónn á veitingastaðnum Fjallkonan í miðbæ Reykjavíkur. Hún segist oft vera kölluð mamman í vinhópnum og lýsir sér sem mjög rólegri týpu sem sé smá „nördi“ inn við beinið.  

Skúli var sjarmerandi á skjánum á blindu stefnumóti. Stöð 2

Skúli er 27 ára reykvíkingur, starfar sem tölvunarfræðingur og veitt fátt betra en rólegheit heima fyrir með kisunum. Hann er stundvís, ábyrgur og dreymir um það að verða pabbi. 

Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)

Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þáttinn en hafa enn ekki séð hann þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér.

........

Það virtust fljótt vera einhverjir töfrar yfir stefnumóti Skúla og Birtu og rómantíkin var ekki langt undan eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan. 

Klippa: Fyrsta blikið: Blint stefnumót Skúla og Birtu endaði með bíómyndakossi

Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru Birta og Skúli þó ekki par þrátt fyrir að hafa náð að heilla hvort annað og áhorfendur á fallegu stefnumóti.

 Bæði segjast þau þó hafi verið ánægð með reynsluna og kvöldið og enn í leit að ástinni og ævintýrum.

Birta og Skúli eru bæði einhleyp í dag en segjast þó mjög sátt við reynsluna í Fyrsta blikinu. 

Fyrsta bliks lagalistar á Spotify

Tónlistin úr þáttunum hefur vakið töluverða athygli og nú verður hægt að nálgast lögin úr hverjum þætti inn á Spotify síðu Fyrsta bliksins. 

Þeir sem vilja koma sér í réttu stemninguna fyrir kvöldið geta nálgast lagalista úr þætti tvö og eitt hér fyrir neðan. 

Lagalistinn úr þætti tvö verður svo aðgengilegur seinna í kvöld. 

Mun ástin kvikna í þætti tvö í kvöld?

Í kvöld kukkan 18:55 mun þáttur tvö fara í loftið á Stöð 2 og munu áhorfendur fá að kynnast tveimur nýjum pörum og fylgja þeim á blind stefnumót.


Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ. 

Aðdáendur Fyrsta bliksins geta fylgst með skemmtilegu aukaefni á Instagram síðu þáttarins @fyrstablikid.

Þættirnir eru átta talsins og verða á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55. Í kjölfarið verða allir þættirnir aðgengilegir á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×