Lífið

Stjörnupáskalífið í samkomubanni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alveg vel hægt að njóta lífsins í samkomubanni.
Alveg vel hægt að njóta lífsins í samkomubanni.

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Síðustu vikur hafa verið heldur óhefðbundnar hjá Íslendingum og margir hverjir mikið til heima í samkomubanni.

Íslendingar héldu upp á páskana um helgina og virtust ferðast innanhúss eins og Víðir Reynisson hafði beðið þjóðina um í miðjum faraldri.

Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson og eiginkona hans Dagný Dögg nutu lífsins saman um páskana. 

 Knattspyrnumaðurinn og fyrirsætan Garðar Gunnlaugsson ákvað nú að klæða sig upp þrátt fyrir að vera fastur heima. 

Kristbjörg Jónasdóttir lét ekki smá rigningu stoppa sig í útiæfingunum um páskana. 

Ásdís Rán eyddi páskunum í Búlgaríu með kærasta sínum Jóhanni Wium.

 Sölvi Tryggvason tók upp á því að skella sér í fjallgöngu um páskana. 

 Samfélagsmiðlastjarnan Camilla Rut er gengin 29 vikur með sitt annað barn. Hún lítur einstaklega vel út. 

 Marín Manda reif fram páskakjólinn og gekk hringinn í kringum húsið. Svona eins og maður gerir í samkomubanni. 

 Atvinnumaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson og fjölskylda nutu páskana heima í Manchester.

 Söngkonan Svala Björgvins klæddi sig sannarlega upp fyrir hátíðarnar. 

 Einar Bárðarson hjólaði.

Pattra Sriyanonge og Theódór Elmar Bjarnason hafa nú haldið sig heima fyrir í að verða mánuð. 

„Fólk undir 20 og yfir 65 mega ekki stíga út á götu og svo tilkynntu yfirvöldin útgöngubann með öllu í 48 klukkustundir í gær.. með tveggja tíma fyrirvara. Ástandið í gærkvöldi var mögulega mín versta martröð þar sem fólk flykktust út til þess að redda sér á síðustu stundu og skapaðist mikil óreiða & hryllingur,“ skrifar Pattra á Instagram.  

  Salka Sól og Arnar Freyr gátu sem betur fer farið í göngutúra þrátt fyrir sóttkví. 

 Birgitta Líf eyddi páskunum upp í bústað. 

Samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einarsdóttir breytti aðeins til í fatavali, í smástund. 

 Samfélagsmiðlastjarnan Bryndís Líf óskar þjóðinni gleðilega páska. 

Alþingismaðurinn Kolbeinn Proppé myndaði skeggraksturinn nokkuð ítarlega og vel. 

„Ég hef alltaf verið listamaður í eðli mínu og striginn, það er ég. Þau sem mig þekkja vita hve ég ligg yfir hverju smáatriði þegar að útlitinu kemur, huga að hverju hári. Það er töluverð vinna, því nóg er af hárunum. Trendsetter hef ég löngum verið talinn, en nú leita ég til fólksins, ég er jú maður fólksins. Einveran leiddi mig á tilraunakenndar brautir og nú býð ég fólki að velja útlitið sem stefnt verður að. Fernt er í boði. Takist illa upp, fór þarna alltént hálftími af deginum. Þetta verður því góður dagur,“ skrifar hann á Instagram. 

 Katrín Tanja nýtti tímann yfir páskana til að æfa og það inni í bílskúr þar sem hún hefur komið sér upp fínni aðstöðu. 

Landsliðsmaðurinn Hörður Magnússon er mættur til landsins frá Rússlandi og fékk loks að hitta stórvin sinn Róbert Aron Hostert. 

 Hanna Rún Bazev Óladóttir birti fallega páskamynd ef þeim mæðgum. 

Leikkonan Kristín Pétursdóttir tekur páskana mjög alvarlega. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×