Tuttugu þúsund fyrir eitt kíló af laxi 21. maí 2012 06:00 Íslenskur bændur eru sagðir geta selt allan þann lax sem þeir koma höndum yfir á síhækkandi verði og stangaveiðimönnum líst ekki á blikuna.FRéttablaðið/Úr einkasafni
Snarhækkandi verð á villtum laxi á heimsmarkaði leiðir til þess að erfiðara er að kaupa upp netalagnir í íslenskum ám. Þetta kemur fram í grein Haraldar Eiríkssonar á vef Stangaveiðfélags Reykjavíkur. Haraldur, sem er ritstjóri svfr.is, segir í grein sinni að flestir samningar um netaleigu í Hvítá og Ölfusá séu útrunnir án þess að hafa verið endurnýjaðir. Á meðan netin hafi verið tekin upp hafi laxagengd á vatnasvæðinu aukist og veiðimenn fundið fyrir því í hækkandi verði. Nú séu blikur á lofti. „Verð á villtum laxi hefur stórhækkað undanfarið, og berast fréttir af því að nú megi hreinlega fá stórfé fyrir netaveiddan villtan lax. Ástæðan er meðal annars sú að hann er talinn mun hollari en sá sem alinn er, fituhlutfall er langtum minna og engin aukaefni fyrir hendi, svo sem PCB,“ segir Haraldur sem kveður kílóverð á villtum lax í verslun Harrods í London nú í vor hafa verið jafnvirði rúmlega 20 þúsund króna. Nokkrum netabændum á Suðurlandi hafi borist kauptilboð í allan netaveiddan lax sem þeir komi höndum yfir. „Verðið er hærra en sést hefur í nokkurn tíma sem ekki mun letja landeigendur til veiðanna. Þetta eru vondar fréttir fyrir stangaveiðimenn er unna svæðinu og bergvatnsánum sem til Hvítár renna,“ skrifar Haraldur og spyr hvort það tækifæri sem hafi gefist á tímum netaleigu Stangaveiðifélagsins sé runnið mönnum úr greipum. - gar
Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Sjá meira