Viðskipti erlent

Hróarskelda í hættu

Nýjasta fórnarlamb fasteigna- og lánsfjárkreppunnar
Nýjasta fórnarlamb fasteigna- og lánsfjárkreppunnar

Svo kann að fara að Hróarskelduhátíðin verði fórnarlamb lánsfjárkreppunnar. Esben Danielsen, talsmaður tónlistarhátíðarinnar, segir í viðtali við danska dagblaðið Roskilde að tónleikahaldarar eigi „tugi milljóna“ inni á bankareikningi hjá Roskilde-bankanum, sem tekinn var til greiðslustöðvunar fyrr í mánuðinum.

Danielsen segir það mikinn létti að danski seðlabankinn ábyrgist innistæður í bankanum, því tónleikahaldarar eigi eftir að gera upp tónleika vorsins.

Danski seðlabankinn ábyrgist hins vegar aðeins bankainnistæður upp að 300.000 dönskum krónum, og því kunna innistæður umfram það að tapast verði bankinn tekinn til gjaldþrotaskipta.

Johnny Madsen hjá Dansk Formue- & Investeringspleje A/S sem TV2 talaði við benti þó á að þar sem danski Seðlabankinn myndi þjóðnýta Roskildebanka, og þar með ábyrgjast skuldabréf í bankanum væri auðveldast að þeir sem ættu háar upphæðir á reikningum bankans skiptu þeim yfir í skammtímaskuldabréf. Þannig gætu þeir komist hjá verulegu tapi.- msh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×