Fangelsisdómar yfir stjórnendum Volkswagen vegna útblásturshneykslis Kjartan Kjartansson skrifar 26. maí 2025 08:59 Volkswagen svindlaði á útblástursprófum eftirlitsstofnana með sérstökum hugbúnaði og hefur þurft að greiða milljarða í sektir og sáttir síðan. Vísir/EPA Tveir fyrrverandi stjórnendur bílaframleiðandans Volkswagen hlutu fangelsisdóma og tveir aðrir skilorðsbundna dóma fyrir svik vegna útblásturshneykslisins sem skók þýskan bílaiðnað í dag. Talið er að hneykslið hafi kostað Volkswagen meira en þrjátíu milljarða evra til þessa.
Fyrrverandi yfirmaður þróunar dísilvéla hjá Volkswagen hlaut þyngsta dóminn af fjórmenningunum sem réttað var yfir, fjögura og hálft ár í fangelsi. Fyrrverandi yfirmaður rafdrifs hlaut tveggja ára og sjö mánaða dóm sem kveðinn var upp í héraðsdómstól í Braunschweig í Norður-Þýskalandi í morgun. Hæst setti fyrrverandi starfsmaðurinn, sem sat í stjórn þróunarmála hjá Volkswagen, fékk fimmtán mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Annar deildarstjóri hlaut 22 mánaða skilorðsbundinn dóm, að því er kemur fram í frétt þýska miðilisins Deutsche Welle. Volkswagen var staðið að því að nota sérstakan hugbúnað til þess að láta dísilbíla sína menga minna þegar eftirlitsstofnanir tóku þá til skoðunar en þeir gerðu þegar þeir voru komnir út í umferð. Nokkrir stjórnarmenn Volkswagen Group hafa hlotið dóma vegna svikanna, bæði í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur þurft að greiða meira en þrjátíu milljarða evra í sektir og sáttir.
Útblásturshneyksli Volkswagen Þýskaland Erlend sakamál Bílar Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira