Leiðarljósið við afnám gjaldeyrishaftanna verður að standa vörð um almenning, koma í veg fyrir að krónan hrynji og verja stöðugleikann. Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og ítrekar að höftum verði aflétt alveg á næstunni. Hann hafnar því að ágreiningur sé milli stjórnarflokkanna. Samstarfið gangi mjög vel.
Sigmundur Davíð fékk nær einróma stuðning til formanns á flokksþingi Framsóknarflokksins í dag, sem og aðrir í forystu flokksins.
Sjá einnig: „Við munum áfram hafa nóg að gera, framsóknarmenn“
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur þagað þunnu hljóði eftir yfirlýsingu forsætisráðherra um afnám gjaldeyrishafta en það hefur ýtt undir sögusagnir þess efnis að hún hafi ekki verið gefin í góðu samkomulagi. Það segir forsætisráðherra hinsvegar af og frá. Hann sé í reglulegu sambandi við formann Sjálfstæðisflokksins um þau skref sem hafi verið tekin í málinu þótt þeir gangi ekki svo langt að lesa yfir ræður hvors annars á landsfundum eða flokksþingum.
Svokallaður stöðugleikaskattur á að skila hundruðum milljarða samkvæmt ræðunni. Sigmundur Davíð segir þó að þar sé ekki um eiginlega tekjuleið að ræða. Þetta fari ekki í rekstur ríkissjóðs eða framkvæmdir. Það sé einfaldlega verið að skapa svigrúm svo hægt sé að aflétta höftunum.
Sjá einnig: Segir sálgreiningar gerðar á stjórnmálamönnum og blaðamönnum
Slitabúin og kröfuhafar bankanna fengu harða útreið í ræðu ráðherrans sem hélt því fram að þau stunduðu njósnir og sálgreiningar og hefðu varið átján milljörðum í verja hagsmuni sína. Ráðherrann ræddi hinsvegar ekki fylgistap flokksins og ásakanir um að hann hafi gengið bak orða sinna varðandi þjóðina og Evrópumálin.
Hann segir nú að hann hafi átt við heildarkostnað, til að mynda af öllum rekstri slitabúanna, allri umsýslu þeirra sem og lögfræðikostnaði. Hann tekur því fjarri að hann hafi reynt að grýluvæða kröfuhafa heldur hafi hann verið að gera grein fyrir hversu mikilir hagsmunir væru í húfi.