Bíða eftir megrun á Reykjalundi 13. október 2005 15:31
Þrjú hundruð sextíu og sex manns bíða eftir að komast í megrun á Reykjalundi, þar af 250 sem ætla í skurðaðgerð til að minnka í sér magann. Offita er vaxandi heilbrigðisvandamál hér á landi en samt sem áður sáu stjórnvöld ekki ástæðu til að geta hennar í heilbrigðisáætlun sem gildir til ársins 2010. Árangur bæði meðferðar og skurðaðgerðar við offitu á Reykjalundi þykir mjög góður og eftirspurnin hefur nú slegið öll met. Lúðvík Guðmundsson, læknir á Reykjalundi, segir að offiita verði sífellt stærra heilbrigðisvandamál og mest áberandi hjá ungu fólki. Sextíu manns fá meðferð við offitu á Reykjalundi hvert ár. Stærsti hlutinn fer í skurðaðgerð. Stjórnendur vilja fá að taka við minnst eitt hundrað sjúklingum á ári. Lúðvík segir að um 350 manns séu á biðlista en frá því að beiðni berist til Reykjalundar um megrunarmeðferð og þar til hann geti hitt fólk í fyrsta viðtali á göngudeild, sem sé undirbúningur fyrir meðferð, hafi liðið tíu til ellefu mánuðir upp á síðkastið. Síðan líði einhver tími þar til meðferð hefjist en það fari svolítið eftir aðstæðum. Biðin sé því eitt og hálft til tvö ár. Rúnar Gísli Guðmundsson, sem dvelur á Reykjalundi, segist lengi hafa átt við offitu að stríða og hann segist þegar hafa náð einhverjum árangri en betur megi en duga skal. Aðspurður hvort hann hafi reynt margt áður en hann hafi farið á Reykjalund segir Rúnar að hann hafi prófað flestallt. Herbalife hafi gagnast honum vel. Þegar hann er inntur að því hvaða væntingar hann hafi fyrir meðferðina að Reykjalundi segir Rúnar að hann vonist til þess að komast aftur niður í tveggja stafa tölu í þyngd. Íris Marelsdóttir, sjúkraþjálfari að Reykjalundi, segir að þrekhjólin á staðnum séu flest gerð fyrir 125 kílóa þungt fólk og sömu sögu sé að segja af göngubrettunum en nú þurfi að huga að því að kaupa mun öflugri búnað. Íslendingar séu að þyngjast það mikið að stofnunin þurfi að eiga þrekhjól og göngubretti sem taki 200 kílóa fólk. Aðspurð hvort ekki komi þyngra fólk til meðferðar segir Íris að einn og einn komi sem slagi hátt í 300 kíló en hún voni að þau þurfi ekki að kaupa svo öflug tæki. Lúðvík segir aðspurður að Íslendingar hafi brugðist seint við offituvandanum og hann hafi oft velt því fyrir sér hvort heilbrigðiskerfið sé orðið svo niðurnjörvað að það eigi erfitt með að bregðast við nýjum heilsufarsvandamálum eins og offitu sem sé orðið gríðarlega stórt. Það hafi gengið mjög illa að fá nauðsynlegar úrbætur til þess að geta tekist á við vandamálið. Mikið sé að vinna því offitunni fylgi mikill sjúkleiki, andleg vandamál og sömuleiðis félagsleg.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira