Fékk heilablæðingu í beinni á ÍNN Bjarki Ármannsson skrifar 4. júní 2016 12:52 „Þetta var svona viðvörun, enda er maður orðinn hundgamall,“ segir Ingvi Hrafn. Vísir/Anton Brink „
Þetta var svona viðvörun, enda er maður orðinn hundgamall,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson fjölmiðlamaður, nýútskrifaður af spítala eftir að hafa næstum því hvatt þennan heim í beinni útsendingu á ÍNN. Ingvi Hrafn fékk væga heilablæðingu á fimmtudagskvöld sem skall á og hvarf á um þrjátíu mínútum, að hans sögn. DV greindi fyrst frá atvikinu. Ingvi eyddi nóttinni á spítala en þegar blaðamaður Vísis náði af honum tali var hann við hestaheilsu á leið í sumarbústað í Borgarfirðinum í glampandi sól. „Ég var að byrja að taka upp inngang að Hrafnaþingsþætti þannig að ég á þetta heilablóðfall í beinni útsendingu,“ segir Ingvi Hrafn. „Og ég mun afhenda læknadeild háskólans disk af þessu svo að ungir framtíðarlæknar geti séð hvernig þetta gerist.“ Ingvi segist hafa gert sex eða sjö tilraunir til að reyna að byrja þáttinn, en ekki getað komið orðunum frá sér. Taltruflanir ýmis konar eru algengt einkenni heilablóðfalls. „Þetta var einhver talfæraruglingur,“segir hann. „Sem Ingvi Hrafn er ekki vanur að hafa uppi, eins og þú veist. Að ég skyldi ekki bara hafa fattað hvað var að gerast og komið mér upp á spítala strax. Í staðinn þrælaðist ég í gegnum tuttugu mínútna inngang.“ Ingvi Hrafn þakkar hlýjar kveðjur og fyrsta flokks umönnun á Landspítalanum. Hann verður kominn í vinnuna á mánudagsmorgun.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira