Sport

Hannes sigrar Kurenkov

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson sigraði rússneska alþjóðlega meistaranum, Nikolai Kurenkov í 3. umferð alþjóðlegs skákmóts í Riga í Lettlandi í gærkvöldi. Hannes hefur fullt hús og er í 1.-4. sæti. Alls taka 112 skákmenn þátt í mótinu og þar af 10 stórmeistarar og er Hannes fimmti stigahæsti keppandinn. Fjórða umferð fer fram í kvöld og þá mætir Hannes, rússneska stórmeistaranum, Evgeny Sveshnikov.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×