Stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra tilbúin Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. mars 2020 18:02 Stefnt er að því að setja í embætti ríkislögreglustjóra fljótlega. Vísir/Vilhelm
Úttekt Ríkisendurskoðunar um embætti ríkislögreglustjóra er lokið og hefur skýrsla verið send Alþingi til meðferðar. Vænta má þess að hún verði gerð opinber fljótlega. Ríkisendurskoðun féllst í september á beiðni dómsmálaráðuneytisins um að gerð yrði heildarúttekt á embætti ríkislögreglustjóra. Beiðnin var lögð fram í framhaldi af ákvörðun um að Bílamiðstöð ríkislögreglustjóra yrði lögð niður en rekstur bílamiðstöðvarinnar hafði verið í miklum ólestri.Sjá einnig: Úttekt gerð á embætti ríkislögreglustjóra í heild sinni Ríkislögreglustjóri fagnaði úttektinni og einkum því að hún ætti að til embættisins í heild sinni. „Einkum í ljósi þeirra fjölmörgu og umfangsmiklu verkefna sem hafa verið færð til embættisins á síðustu árum,“ líkt og sagði í tilkynningu frá embættinu í september. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, hefur óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að nefndin fjalli um skýrsluna en hann greindi frá þessu við upphaf þingfundar í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisendurskoðun verður skýrslan gerð opinber á vef embættisins þegar málið hefur verið tekið fyrir á vettvangi Alþingis. Líklegt þyki að það verði fljótlega. Samkvæmt upplýsingum frá formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar verður málið væntanlega á dagskrá nefndarinnar þegar nefndadagar fara fram á Alþingi í næstu viku.
Alþingi Lögreglan Stjórnsýsla Mest lesið Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Erlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Fleiri fréttir Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Sjá meira