Erlent

Forseti verði þjóðkjörinn

Recep Tayyip Erdogan. Forsætisráðherra Tyrklands játar sig sigraðan.
fréttablaðið/ap
Recep Tayyip Erdogan. Forsætisráðherra Tyrklands játar sig sigraðan. fréttablaðið/ap

Stjórnarflokkurinn í Tyrklandi fór á þriðjudag fram á það við þingið að þingkosningum yrði flýtt um nokkra mánuði. Að öllum líkindum verða þær haldnar 22. júlí næstkomandi í staðinn fyrir nóvember.

Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra sá sér ekki annað fært en að flýta þingkosningunum eftir að honum tókst ekki að fá þingið til að kjósa Abdullah Gül, núverandi utanríkisráðherra, í embætti forseta landsins.

Erdogan hefur jafnframt gefið til kynna að hann muni hugsanlega biðja þingið um að breyta stjórnarskrá landsins þannig að forseti verði framvegis þjóð-kjörinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×