Fá rúmar átta þúsund krónur fyrir tveggja daga prjónavinnu Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 15. júní 2016 07:00 Falleg lopapeysa prjónuð fyrir Handprjónasambandið. Fréttablaðið/Ernir
Handprjónasambandið greiðir 10.600 krónur fyrir lopapeysu í miðlungsstærð fyrir konur. Efniviðinn þarf prjónafólk að kaupa sjálft á heildsöluverði, í peysuna fara um 700 grömm af garni sem kosta 2.420 krónur. Launin fyrir peysuna, sem tekur um tvo daga fyrir vana að prjóna, eru því 8.180 krónur. Handprjónasambandið er samvinnufélag sem selur afurðir sínar á markaði. Rúmlega fimm hundruð manns prjóna fyrir sambandið, mestmegnis konur og þær eru félagsmenn. Sambandið ber því við að þeir sem prjóna fyrir það séu flestar áhugakonur um prjón. Prjónið sé ástríðufullt áhugamál og það sé engin pressa að skila af sér afurð. Konurnar séu ekki í vinnu á vegum Handprjónasambandsins en sé gefinn kostur á því að fá laun fyrir áhugamál sitt. Eftirgrennslan leiðir í ljós að konur sem prjóna fyrir Handprjónasambandið virðast ánægðar með fyrirkomulagið þótt þær myndu vilja fá meira greitt fyrir peysuna.Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasamband Íslands.Vísir/GVAÞuríður Einarsdóttir, formaður Handprjónasambandsins, segir greiðslur til prjónafólks hafi verið hækkaðar tvisvar sinnum, í nóvember á síðasta ári og í apríl á þessu ári. „Við erum að reyna að halda í við prósentuhækkun kjarasamninga. Við höfum samt verið að reyna að halda kostnaði í lágmarki og verðinu á peysunum en kannski þurfum við að vera harðari í þessu.“ Þuríður telur að Handprjónasambandið selji um þúsund peysur á mánuði og segir tekjurnar sem prjónafólk fær þýðingarmiklar. „Margar eru duglegar að prjóna og í einhverjum tilfellum eru þær að drýgja tekjur sínar eða lífeyri, segir hún. Meðalaldurinn sé nokkuð hár í hópi prjónafólks. „Sú elsta sem prjónar fyrir okkur er níutíu og þriggja ára gömul,“ segir Þuríður. Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, segist oft hafa vísað í þennan iðnað sem dæmi um hversu verðlítil vinna kvenna sé. „Þetta er arfur frá gamalli tíð og viðhorfið virðist vera að konur hafi svo gaman af þessu að það er óþarfi að greiða þeim fyrir vinnuna,“ segir Drífa og segir meira að segja undanþágu í lögum um 40 stunda vinnuviku er lýtur að vinnu prjónakvenna. Drífa segir augljóst að vinnan sé langt frá lágmarkslaunum. „Það væri áhugavert að fá prófmál til hreyfingarinnar þar sem gerð er launakrafa byggð á raunverulegu vinnuframlagi og raunverulegum lágmarkstöxtum. Ég hvet prjónakonur til að leita til verkalýðsfélaga með sín mál. Þetta er orðinn stór iðnaður og enn eitt dæmi um hvernig ferðaþjónustan sprengir utan af sér þann heimilisiðnaðarbrag sem áður var. Ef við ætlum raunverulega að byggja framtíðarvinnumarkað á ferðaþjónustu verðum við að koma svona hlutum í lag,“ segir Drífa. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 15. júní.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Fleiri fréttir Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Sjá meira