Söfnunarátakið „Fer fjölskyldan á flakk í sumar?“ hafið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. júní 2016 14:53 Alls eru 500 þúsund sýrlenskar konur á flótta óléttar. mynd/un women
UN Women hafa hleypt af stað sms-söfnunarátakinu „Fer fjölskyldan á flakk í sumar?“ sem miðar að því að hvetja almenning til að senda sms-ið KONUR í 1900 til styrktar konum á flótta en í tilkynningu frá UN Women kemur fram að 70 þúsund sýrlenskar barnshafandi konur séu á flótta og þá eingöngu utan Sýrlands. Alls eru 500 þúsund sýrlenskar konur á flótta óléttar. Stríðið í Sýrlandi hefur nú geisað í rúm 5 ár og eru 12,2 milljónir manna á flótta innan eða utan landsins vegna stríðsins. Þá hafa aldrei verið fleiri konur á flótta í heiminum og ríkir neyðarástand á landamærastöðvum í Evrópu sem einkennist af örvæntingu, ótta og úrræðaleysi. Búið er að loka landamærum í Serbíu og Makedóníu og er fólk nú í auknum mæli sent til Tyrklands. Flest sýrlenskt flóttafólk dvelur í Tyrklandi eða 2,7 milljónir manna og þar af rúm ein og hálf milljón sýrlenskra flóttakvenna. Hálf milljón flóttakvennanna í Tyrklandi eru á barnseignaraldri. Talið er að 12% kvenna sem ferðast yfir Miðjarðarhafið séu með barni. Margar eru með börn á brjósti eða ferðast með ungabörn með sér. Gríðarleg aukning hefur orðið á mæðradauða á meðal flóttakvenna síðastliðin ár. UN Women vinnur að því að bregðast neyð þessara kvenna og mæta þörfum þeirra með sértækri þjónustu í færanlegum heilsugæslustöðvum sem samtökin starfrækja á landamærastöðvum í Makedóníu, Serbíu og Tyrklandi.
Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Sjá meira