Eins og skólatöskur í framan 13. október 2005 14:24
Allir ljósabekkir verða horfnir af sundstöðum höfuðborgarinnar frá og með áramótum vegna hættunnar sem fylgir mikilli notkun þeirra. Aðstoðarlandlæknir segir öfugsnúið að bjóða upp á heilsuspillandi ljósabekki á líkamsræktarstöðvum og bendir á að krakkar sem stundi þá geti litið út eins og skólatöskur í framan síðar á ævinni. Bárður Sigurgeirsson húðlæknir segir í nýjasta riti Læknablaðsins að það sé sérstakt áhyggjuefni hve ljósabekkjanotkun virðist algeng hjá börnum og unglingum. Hann segir það sjálfsagða kröfu í ljósi skaðsemi ljósabekkja að þeir verði fjarlægðir frá opinberum stöðum á borð við sundlaugar og líkamsræktarstöðvar. Undir þetta tekur landlæknisembættið sem lét málið fyrst til sín taka fyrir um áratug en Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir þá hafa verið lagt til að banna krökkum undir 18 ára aldri að nota ljósabekki. Það hafi hins vegar ekki verið pólitískur vilji fyrir því á þeim tíma og þess í stað hafi fræðsla verið sett í gang. Matthías segir öfugsnúið að hafa ljósabekki á líkamsræktarstöðvum og ekki ósvipað því að selja tóbak á stöðum sem ætlaðir séu til heilsueflingar því ljósabekkirnir séu í raun heilsuspillandi. Hann segir unga krakka ekki skilja nægilega vel hvað felist í húðkrabbameini. Húðin verði „ljót og hrukkótt og þeir sem eru lengi í sól verða eins og skólatöskur í framan,“ segir Matthías. Það sé hins vegar það sem krakkar vilji væntanlega síst. Borgaryfirvöld hafa látið sig þessi mál varða og segir Anna Kristinsdóttir, formaður ÍTR, að dregið hafi mjög mikið úr notkun bekkjanna á líkamsræktarstöðvum, eflaust einnig vegna umræðunnar um skaðsemi bekkjanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Innlent Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent „Þetta eru ekki góðar móttökur“ Innlent Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár Innlent Hver var Charlie Kirk? Erlent Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Innlent „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Innlent Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Erlent Fleiri fréttir Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Samdráttur eftir fjögurra ára vaxtarskeið Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Kaldavatnslaust í hluta Laugardalsins Stefán Einar og Sigmar ræða skautun í kjölfar voðaverks Fjórtán geta búist við sekt Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla „Þetta eru ekki góðar móttökur“ E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði „Froðuhagnaður“ Félagsbústaða haldi borginni á floti Launahækkanir þungur baggi á borginni Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Fjörugar umræður um fjárlög: Hóflegur útgjaldavöxtur, vonbrigði eða della? Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Bein útsending: Daði Már mælir fyrir fjárlögum næsta árs Ofbeldi foreldra gegn börnum jókst um nær helming 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Sjá meira