Aldur feðra ráðandi þáttur þegar kemur að stökkbreytingum Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 23. ágúst 2012 12:21 Kári Stefánsson.
Aldur feðra, þegar getnaður á sér stað, er ráðandi þáttur þegar kemur að stökkbreytingum. Þetta leiðir ný rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar, eða DeCode í ljós. Rannsóknin birtist í hinu virta tímariti Nature í dag en hún beindist að því að reyna að skilja tíðni nýrra stökkbreytinga í erfðamengi Íslendinga. Niðurstöðurnar byggðust á því að rannsaka sjötíu og átta feður og mæður, og að minnsta kosti eitt barn þeirra. Leitað var að breytanleikum í erfðamengi barnsins sem ekki fundust í erfðamengi foreldranna. „Ef þú veltir þér hvað stökkbreytingar gera, þá eru það þær sem búa til nýjan breytileika í erfðamengi okkar og eru á þann hátt mikilvægar til þess að undirbúa okkur undir nýjan heim, hjálpa okkur að aðlagast nýjum heimi," segir Kári stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sem fór fyrir rannsókninni. Hann segir mjög mikilvægt að vita hvað það er í okkar samfélagi sem hafi áhrif á tíðni stökkbreytinga. Stökkbreytingatíðnin verður fyrir mjög litlum öðrum áhrifum en þeim sem eiga rætur sínar í aldri föður. Þannig að það er næstum því ekkert annað, mjög lítið í okkar umhverfi sem hefur áhrif á stökkbreytingartíðni, en aldur föður. Ástæðan fyrir þessu er sú að egg móðurinnar myndast öll strax á fósturskeiði. Kynfrumur karla myndast hinsvegar fram á háan aldur. „Ef þú tekur sjúkdóma eins og geðklofa eða einhverfu að þá eru líkur á því fertugur faðir eignist barn sem endanlega fær geðklofa eða einhverfu eru tvisvar sinnum meiri heldur en hjá tvítugum manni. Þá er mjög freistandi að komast að þeirri niðurstöðu að þessi aldursaukning eigi rætur í þessum stökkbreytingum." Kári segir þó að menn eigi að fara varlega í að nota niðurstöðurnar til að taka „dramatískar ákvarðanir um sjálfan sig og mögulega afkomendur sína." „En þetta er eitt af mörgum hlutum sem ég held að menn eigi að hyggja að."
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira