Segja brettagarð og breytt bílastæði þrengja að Þrótti 23. ágúst 2012 06:00 Brynjólfur Óskarsson vallarstjóri er afar óhress með að missa um sextíu stæði við íþróttaaðstöðu Þróttara. fréttablaðið/gva
Verið er að ljúka framkvæmdum á brettagarði í Laugardal, á sama stað og Þróttur hafði hugsað sér íþróttahús. Einnig á að lagfæra bílastæðin við gervigrasvöllinn en þá missa Þróttur og Ármann um 50 til 60 stæði. „Það er verið að þrengja verulega að Þrótti,“ segir Pétur Stephensen, framkvæmdastjóri Þróttar. Nú eru framkvæmdir á brettagarði í Laugardal á lokastigi en á sama stað höfðu Þróttarar í hyggju að byggja íþróttahús sitt í framtíðinni. Í framhaldi af framkvæmdunum við brettagarðinn á að gera breytingar á bílastæðinu fyrir framan gervigrasvöllinn í Laugardal og við það fækkar bílastæðum þar, sem nú eru um 50 til 60. Þróttur hefur verið með aðstöðu í Laugardalshöllinni en Sigurlaugur Ingólfsson, formaður aðalstjórnar Þróttar, segir að hún hafi oft verið umsetin vegna annarra íþróttaviðburða eða tónleikahalds. „Þetta hefur nú aðeins skánað eftir tilkomu Hörpu en við höfum samt verið að missa marga æfingartíma,“ segir hann. Hann segir enn fremur að nú sé verið að vinna að heildarskipulagningu á svæðinu. „Og við munum náttúrlega reyna að koma því á framfæri við borgina þegar það er tilbúið,“ segir hann. Honum sýnist hins vegar búið að valda reitinn sem hugsaður hafði verið fyrir íþróttahúsið. „Við höfum aðallega horft á þennan stað upp á tengingu við félagsheimilið. Í raun er ekki um aðra staði að ræða, svona í fljótu bragði séð.“ Pétur segir að fækkun bílastæða komi sér afar illa fyrir félagið. „Við erum á góðri leið með að komast í úrvalsdeildina og við viljum ómögulega að áhorfendur þurfi að borga sektir eftir hvern heimaleik eins og gerst hefur annars staðar,“ segir hann. Brynjólfur Óskarsson, vallarvörður hjá Þrótti, segir félagið ekki mega við því að missa bílastæði. „Ef eitthvað er um að vera annaðhvort í Höllinni eða á Laugardalsvelli þá fyllast okkar stæði undir eins,“ segir hann. Jón Þór Ólason, framkvæmdastjóri Ármanns sem er einnig með aðsetur á svæðinu, segist bæði sjá agnúa og jákvæða hluti varðandi framkvæmdirnar á bílastæðinu. „Það er náttúrlega ánægjuefni að verið sé að taka þetta í gegn en þetta hefur verið til háborinnar skammar,“ segir hann. „Við höfum lengi viljað fá lýsingu á svæðinu en ekki getað gert það sjálfir þar sem borgin á svæðið svo ég fer ekki að agnúast út af því að farið sé í betrumbætur. En hitt er annað mál að bílastæðið er alltof lítið fyrir okkur svo það er engan veginn hægt að gleðjast yfir því að verið sé að klípa af því.“ jse@frettabladid.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira