Segir ákvörðun Lilju ótrúlega jákvætt skref Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 23. ágúst 2012 20:13
Stjórnmálafræðiprófessor furðar sig á að Lilja Mósesdóttir, móðir Samstöðu, hafi kastað sterkasta vopninu frá flokknum. Stjórnarmaður í flokknum segir hins vegar Lilju hafa skapað ótrúlegt tækifæri fyrir Samstöðu með því að hætta sem formaður. Í rauðabítið í morgun sendi Lilja frá sér yfirlýsingu þess efnis að eftir landsfund flokksins myndi hún hætta sem formaður flokksins Þar með verða báðir upphaflegir forystumenn þessa sex mánaða gamla flokks horfnir úr fremstu víglínu. Lilja kvað ástæðurnar einkum þær að ný framboð væru í mun verri stöðu en rótgrónir flokkar - fengju ekki styrki úr ríkissjóði - og hefðu verra aðgengi að fjölmiðlum. „Maður klórar sér í höfðinu yfir þessu, að Lilja sé að stíga til hliðar og einhvern veginn að kasta frá flokknum sterkasta vopninu," segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Spurð hvort hún sjái eftir Lilju bendir Kristbjörg Þórisdóttir, stjórnarmaður í Samstöðu á að Lilja sé ekki farin úr flokkum og verði áfram inni á þingi. Lilja kvaðst með brotthvarfi sínu vera að axla ábyrgð á fylgistapi Samstöðu en flokkurinn hlaut undravert fylgi í fyrstu - þegar ríflega fimmtungur kjósenda studdi framboðið. Síðan hefur fylgið hrunið, var 7% í apríl og 2,7% nú í ágúst. Kristbjörg óttast ekki að þetta verði banabiti flokksins. „Alls ekki. Ég held að þetta sé ótrúlega jákvætt skref. Mér finnst Lilja sýna mjög mikla mannkosti með því að sýna að Samstaða snýst ekki um eina manneskju," segir hún. Nú í byrjun kosningavetrar eru því enn fjórir smáflokkar um hituna en þar er Björt framtíð ein með yfir fimm prósenta fylgi samkvæmt Capacent - sem er það sem þarf til að ná manni á þing. Samanlagt fylgi smáflokkanna er því tæp 18 prósent. „Þessir litlu flokkar eru ekki að ná miklu flugi, án þess að ég sé að afskrifa þá. Ég tel að þeir séu alveg í ágætum séns eins og staðan er í dag," segir Grétar.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Ráðst í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Sjá meira