„Maður er sleginn. Ég hélt að Kobe Bryant væri ódauðlegur. Ég verð að segja eins og er.“
Þetta segir Svali H. Björgvinsson í samtali við Vísi, inntur eftir viðbrögðum við fréttum kvöldsins um að bandaríska körfuboltagoðsögnin Kobe Bryant hafi farist í þyrluslysi í Kaliforníu í dag ásamt fjórum öðrum. Bryant varð 41 árs gamall.
„Ég er búinn að lýsa fleiri tugum, ef ekki hundruðum leikja með þessum manni síðan hann var sautján ára gamall. Þetta er ofsalega sorglegt. Hann hefur haft áhrif – ef við tökum þetta út frá körfubolta – það eru nokkrir leikmenn sem hafa haft áhrif á leikinn og breytt honum til hins betra. Hann er einn af þeim.
Hann hafði gildi, að vera í einu liði. Stjórnlaus, og rosaleg þrá eftir sigri og fullkomnun í körfubolta og í lífinu er náttúrlega áhugaverður vinkill. Þannig var hans persónuleiki. Þú þarft að vera fæddur með einstaka hæfileika og síðan þarftu að leggja gríðarlega mikið á þig til að ná þeim afrekum og árangri sem hann náði. Hann hafði metnað til þess. Það er ekki nóg að hafa hæfileika, heldur þarftu að leggja meira á þig en nokkur annar. Sem hann gerði. Hann virðist hafa fórnað vináttu og fleiru fyrir árangur.“

Ræddi titlana sem aldrei unnust
Kobe Bryant vann á ferli sínum fimm NBA-titla. „Í viðtölum fór hann hins vegar oft að tala um titlana sem hann vann ekki. Hann hefði átt að vinna þennan titil og þennan titil. Þeir hefðu átt að vera sex eða sjö. En það getur náttúrulega verið krefjandi að vera í kringum þannig fólk. Persónuleiki hans og [Michael] Jordan hefur þannig verið líkur. Voru kröfuharðir og fóru fram á fullkomnun hjá öllum.“
Svali segir það hafa verið frábært að sjá að Bryant hafi verið eins liðs maður – bara spilað með Los Angeles Lakers. „Maður sér í körfubolta og öðrum íþróttum – bæði hér og erlendis – að menn eru að hoppa á milli liða. Fara yfir lækinn. Leita langt yfir skammt. Hann er að spila sinn feril hjá Lakers og er þá orðinn mjög stór hluti af þeirri samkomu. Sem gerir hann líka einstakan. Þú þarft ekkert að fletta í einhverjum bókum hvar hann var.
Lakers er heldur ekkert venjulegt lið. Menn fá „platform“, og athyglin og umfjöllunin á þessum stað er svo gríðarleg. Stjörnudýrkunin er stjórnlaus. Svo virðist besta bestu menn verða ruglaðir af þessari athygli en hann virðist hafa haldið fókus, svona að mestu að minnsta kosti.“

Stórstirni fallið frá
Svali segir Kobe Bryant hafa haft feykileg áhrif á körfuboltann og haft mikla þrá til að miðla leiknum, miðla til yngri leikmanna þó að hann hafi af mörgum virst vera feiminn og hlédrægur náungi.
„Það er stórstirni fallið frá, ekki bara innan körfuboltaheimsins heldur heimsins alls. Það er líka magnað að sjá viðbrögðin hér heima. Þetta var maður sem snerti marga. Þetta minnir okkur á að vera góð hvert við annað. Njóta meðan við höfum þar sem við vitum ekki hvenær kallið kemur,“ segir Svali.