Átti ekki fyrir sjampói um tíma 13. október 2005 14:24 "
Ég fór upphaflega til Englands til þess að fara í skóla. Þetta var listaskóli í Liverpool sem er rekinn undir nafni Paul McCartney," segir Heiðrún Anna Björnsdóttir, sem var þarna við nám á sama tíma og Björn Jörundur úr Ný danskri sem var í leiklistarnámi, Gunnar Bjarni úr Jet Black Joe sem var í tónlistarnámi og Gottskálk Dagur sem var í leiklist eins og Björn. "Þetta var alveg rosalega dýrt nám, ég var þarna í tónlistardeild mig langaði alltaf til þess að fara í tónlistarnám þó svo að ég hafði sótt um í leiklistarskólann hér heima eftir að ég var í Hárinu. Ég komst í 16 manna hópinn en fór ekki inn á endanum, þá ákvað ég að snúa mér alfarið að tónlistinni," segir Heiðrún Anna sem hafði auk þess að leika Hárinu verið í stuttmyndinni Nautn sem Gusgus gerði og kvikmyndinni Nei er ekkert svar eftir Jón Tryggvason. Hún var eitt ár í skólanum í Liverpool. "Ég var alveg ákveðin í því að láta á það reyna hvort ég gæti ekki komið mér áfram í tónlistinni þarna úti. Ég stofnaði hljómsveitina Gloss með nokkrum strákum og við fengum fljótlega mjög góðan plötusamning við útgáfufyrirtækið Nude sem gaf út Suede. Það var frábært að geta lifað af tónlistinni og við tókum upp heilmikið efni, fórum í tónleikaferðalög um Evrópu og allt virtist vera að ganga upp. Skyndilega lýsir útgáfufélagið sig gjaldþrota og þar með hrundi okkar spilaborg. Við vorum nýbúin að klára breiðskífuna okkar og taka upp mjög flott myndband sem kostaði yfir 10 milljónir. Þetta var náttúrlega brjálað áfall fyrir okkur, það var einhvernveginn allt við það að fara gerast og þá stóðum við uppi með báðar hendur tómar," segir Heiðrún. "Við höfðum verið á tónleikaferðalagi um Evrópu með öðru bandi, Haven, og ég byrjaði að vera með söngvaranum í þeirri hljómsveit eftir að við komum aftur til Bretlands. Hann er alveg ótrúlega góður söngvari og þeir eru með samning þannig að hann er í betri málum en ég að því leyti. Það var svo skrítið á meðan á ævintýrinu stóð að ég hugsaði oft til þess að þetta gæti endað eins skyndilega og það gerði. Ég man þegar við vorum að gera myndbandið þá sveif yfir mig sú tilfinning að þetta væri allt saman of gott til að endast. Við leystum bara bandið upp í kjölfarið, það var mjög leiðinlegt. Ég lifði á loftinu og átti ekki einu sinni fyrir sjampói þegar verst stóð á. Ég fór svo í gegnum svona hálfgerða uppgjöf á bransanum. Ætlaði jafnvel að gera eitthvað allt annað og var næstum því búin að skrá mig í innanhúshönnun. En svo er þetta bara svo ótrúlega skemmtilegt þó að tónlistabransinn sé erfiður að þá ætla ég að halda ótrauð áfram og er að vinna að nokkrum spennandi verkefnum núna. Það er alveg nóg að gera, en málið er að það tekur bara allt miklu meiri tíma hér en heima Íslandi," sagði þessi hressa söngkona áður en hún stökk upp í flugvél til London á leiðinni heim til Manchester.
Menning Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira