Aðeins ein örugg leið til að verjast tölvuþrjótum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 2. janúar 2014 16:34 Það er alltaf ljóst að ákveðin þjónusta verður seint innt af hendi án persónulegra samskipta. mynd/365
Veflykill ríkisskattstjóra mun heyra sögunni til. Ráðgert er að hætta notkun hans á næstu árum og ríkisskattstjóri mun koma til með að notast við rafræn skilríki eingöngu. Þetta kemur fram í leiðara þeirra Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskattstjóra og Ingvars J. Rögnvaldssonar vararíkisskattstjóra í nýjasta tölublaði Tíundar, fréttablaðs RSK, frá því í desember 2013. Rafræn skilríki séu það eina sem vit sé í að nota ef viðskiptamenn vilja hamla óviðkomandi aðilum aðgang að fjárhagsupplýsingum sínum eða öðrum viðkvæmum upplýsingum.Engin leyniorð Meginhætta við innbrot á vefsíður sé sú að óviðkomandi aðilar geta afritað leyniorð eins og raun varð í byrjun desembermánaðar. Þar eiga þeir við það þegar tölvuþrjótur hakkaði sig inn á síður Vodafone og lak þaðan viðkvæmum persónulegum upplýsingum. Gegn slíku sé aðeins ein örugg leið þekkt hérlendis og það eru rafræn skilríki. Þeim fylgi engin leyniorð heldur aðeins pin-númer. En þegar tölvuþrjótar komist yfir leyniorð geti þeir opnað sér leið inn á skrár sem honum er óviðkomandi. Rafræn þjónusta sé í vaxandi mæli að ryðja sér rúms og innan fárra ára muni þjónustan verða ráðandi í samskiptum borgaranna við fyrirtæki og stofnanir. Þó sé ljóst að ákveðin þjónusta, hvort heldur er opinber eða á vegum einkaaðila, verði seint innt af hendi án persónulegra samskipta. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur haft forystu í innleiðingu rafrænna skilríkja og um skynsama ákvörðun hafi verið að ræða.Danir hafa stigið mun stærra skref Danir samþykktu á árinu 2012 lög um skyldubundna rafræna sjálfsþjónustu borgaranna og fyrirtækja við hið opinbera. Lögin taka til allra og þeir sem eiga ekki nauðsynlegan tölvubúnað er ætlað að notast við almenningstölvur, til dæmis á bókasöfnum eða á öðrum stöðum. Innleiðingu þessarar þróunar í Danmörku er ætlað að taka fjögur ár. Skúli og Ingvar segja að þó svo stór skref hafi ekki enn verið stigin í opinberri stjórnsýslu hér á landi sé vert að gefa því gaum sem Danir eru að gera og fylgjast vel með hvernig þeim tekst til.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira