"Hann fékk krepptan hnefann í andlitið" Jóhannes Stefánsson skrifar 2. janúar 2014 22:29 Árásarmaðurinn var í annarlegu ástandi, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Pjetur
Sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins varð fyrir árás af hálfu karlmanns sem verið var að flytja á slysadeild. Þetta staðfestir Eyþór Leifsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu. „Hann fékk krepptan hnefann í andlitið," segir Eyþór í samtali við fréttastofu. Árásin átti sér stað í bílageymslu bráðamóttökunnar í Fossvogi, en Eyþór segir að samstarfsmenn sjúkraflutningamannsins hafi þurft að halda árásarmanninum niðri á meðan beðið var eftir aðstoð lögreglu. „Hann [sjúkraflutningamaðurinn innsk. blm.] er töluvert bólginn í andliti en hann ákvað þrátt fyrir það að halda áfram vinnu eftir að hafa fengið aðhlynningu." Eyþór segir ekkert hafa gefið til kynna að maðurinn myndi bregðast við með þessum hætti og því hafi verið ákveðið að óska ekki eftir aðstoð lögreglu við flutninginn, eins og oft er gert þegar viðkomandi er augljóslega í annarlegu ástandi. „Við tökum lögreglumenn með okkur í bílinn ef við teljum vera minnstu hættu á ferðum," segir Eyþór. „Hann var mjög rólegur og hafði fulla stjórn á sér framan af. Svo þegar þeir nálguðust slysadeildina þá skipti hann skapi og lét högg svo dynja á honum þegar komið var inn í bílageymsluna," bætir hann við. „Þetta sýnir það að við erum að flytja allskonar fólk í allskonar ástandi. Það getur stundum verið hættulegt starf að vera sjúkraflutningamaður," segir Eyþór að lokum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira